Segist ekki hafa hunsað Solskjær: „Stórar lygar til að búa til fyrirsagnir“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 27. október 2021 09:32 Ole Gunnar Solskjær og Paul Pogba á góðri stund. getty/Simon Stacpoole Paul Pogba, leikmaður Manchester United, segir ekkert til í því að hann hafi hunsað knattspyrnustjórann Ole Gunnar Solskjær eftir tapið fyrir Liverpool.
Pogba kom inn á sem varamaður í hálfleik gegn Liverpool þegar staðan var 0-4, Rauða hernum í vil. Frakkinn átti enga draumainnkomu. Hann missti boltann í aðdraganda fimmta marks Liverpool á 50. mínútu og tíu mínútum síðar var hann rekinn af velli fyrir ljótt brot á Naby Keïta. The Sun birti frétt um að Pogba hafi beðið samherja sína afsökunar á rauða spjaldinu sem hann fékk. Hann hafi aftur á móti ekkert sagt við Solskjær og hafi sett viðræður við United um nýjan samning á ís. Pogba segir þetta af og frá. „Stórar lygar til að búa til fyrirsagnir,“ skrifaði Frakkinn á Twitter með mynd af frétt The Sun. Á henni stendur „falsfréttir“. Big lies to make headlines pic.twitter.com/VBQiBxSuNO— Paul Pogba (@paulpogba) October 27, 2021 Samningur Pogbas við United rennur út næsta sumar og hann hefur þrálátlega verið orðaður við brottför frá félaginu. Ekki eru allir sáttir með Pogba og hvernig hann hefur spilað og komið fyrir. Nafni hans, Paul Scholes, er þar á meðal en eftir leikinn gegn Liverpool sagði hann að hann myndi ekki sjá á eftir Frakkanum ef hann myndi ekki spila fleiri leiki með United. Pogba byrjaði tímabilið af miklum krafti og lagði upp fimm mörk í fyrstu tveimur leikjum United í ensku úrvalsdeildinni. Hann hefur hins vegar ekki náð að fylgja því eftir og byrjað á varamannabekknum í síðustu tveimur leikjum United.
Enski boltinn Mest lesið Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Rafmagnið af í Mosó og seinni hálfleikur spilaður síðar Handbolti Sjóðheitur Ísak skoraði í fyrsta sigrinum Fótbolti „Jón Þórarinn og sóknarleikurinn glöddu mig mest“ Handbolti Uppgjörið: FH - Stjarnan 38-31 | Sannfærandi sigur í fyrsta leik undir stjórn Arons Handbolti Hágrét í bílnum með mömmu Fótbolti Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Enski boltinn Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu Formúla 1 Enrique samþykkti að ná sjö árum hjá PSG Fótbolti Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Körfubolti Fleiri fréttir Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Sjá meira