Simeone sá rautt er spænsku meistararnir misstigu sig Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 28. október 2021 21:24 Diego Simeone þurfti að fylgjast með seinustu mínútum leiksins úr stúkunni. David S. Bustamante/Soccrates/Getty Images Spænsku deildarmeistararnir Atlético Madrid unnu 2-1 sigur er liðið heimsótti Levante í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld.
Antoine Griezmann kom gestunum í Atlético yfir strax á 12. mínútu, áður en Enis Bardhi jafnaði metin 25 mínútum síðar af vítapunktinum. Staðan var því 1-1 í hálfleik. Þegar átta mínútur voru liðnar af seinni hálfleik stöðvaði dómarinn leikinn og spjaldaði Diego Simeone, þjálfara Atlético Madrid, fyrir óíþróttamannslega framkomu, en það átti eftir að draga dilk á eftir sér. Þegar um stundarfjórðungur var til leiksloka kom Matheus Cunha gestunum í Atlético yfir á nýjan leik eftir stoðsendingu frá Rodrigo De Paul. Tæpum fimm mínútum síðar stöðvaði dómarinn leikinn og gaf Simeone sitt annað gula spjald fyrir óíþróttamannslega hegðun, og þar með rautt. Þjálfarinn litskrúðugi þurfti því að fá sér sæti uppi í stúku það sem eftir var af leiknum. Þegar um fimm mínútur voru til leiksloka fengu liðsmenn Levante aðra vítaspyrnu þegar Renan Lodi handlék knöttinn innan vítateigs. Enis Bardhi fór aftur á punktinn og jafnaði metin af öryggi fyrir heimamenn. Atlético Madrid er nú í sjötta sæti deildarinnar með 19 stig eftir tíu leiki. Levante situr hins vegar í næst neðsta sæti með sex stig eftir 11 leiki.
Spænski boltinn Mest lesið Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs Fótbolti HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Fótbolti „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Beta aldrei upplifað annað eins Fótbolti Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Handbolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fótbolti Fleiri fréttir Þetta þarf að gerast svo við fáum leik á milli Messi og Ronaldo á HM Pele og Thierry Henry fá götu í New York nefnda eftir sér Norðmenn ekki aðeins með lið á HM heldur einnig lögreglumenn Bestu-deildarpar á von á barni saman Grét af gleði þegar Mexíkó byrjaði HM á sigri á níu Suður-Afríkubúum Ísland og Argentína hækkuðu sig bæði á FIFA-listanum Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fljótasta opnunarmark HM í tuttugu ár Mourinho skrifaði undir þriggja ára samning Heimsendi HM-dómarinn fær að dæma úrslitaleik Borga rútur svo stuðningsmenn komist á leikinn Marokkó missir lykilmenn rétt fyrir HM Beta aldrei upplifað annað eins Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Elstir og yngstir á HM Thelma Karen fer ekki á EM Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót HM-minning: Breytti öllu með „hræðilegri“ klippingu á miðju HM Edwards rekinn frá Úlfunum „Slakiði á“ Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga Ronaldo fór illa með færin í kvöld Birkir Már skorar þegar það er Megavika Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Geta unnið HM þrátt fyrir að eiga engan leikmann á topp 100 Infantino vill ekki biðjast afsökunar á miðaverðinu á HM „Við erum félagar, við Messi“ Segja dómarann vera með tengsl við „hryðjuverkasamtök“ McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Sjá meira