Útlit fyrir að Newcastle kaupi stjóra sem entist stutt síðast á Englandi Sindri Sverrisson skrifar 2. nóvember 2021 14:30 Unai Emery hefur gert það gott hjá Villarreal sem vann Evrópudeildina undir hans stjórn í vor. Getty/Xisco Navarro Pardo Tveir knattspyrnustjórar koma til greina í starfið hjá nýjum eigendum Newcastle og mestar líkur eru á því að Unai Emery, fyrrverandi stjóri Arsenal, taki við liðinu.
Frá þessu greinir The Athletic og segir að forráðamenn Newcastle vinni nú í því að klára að gera samning við Emery. Annar kostur sé Eddie Howe sem hefur verið án starfs síðan að hann hætti með Bournemouth vorið 2020. Emery er í dag stjóri Villarreal á Spáni en hann stýrði áður Arsenal í eitt og hálft ár, eða þar til að hann var rekinn í nóvember 2019. Þar áður var þessi 49 ára gamli Spánverji stjóri PSG í Frakklandi og enn áður stjóri Sevilla. Emery vann franska meistaratitilinn með PSG 2018 en hefur aðallega sérhæft sig, ef svo má segja, í Evrópudeildinni þar sem hann hefur náð einstökum árangri. Undir stjórn Emerys vann Sevilla keppnina þrjú ár í röð, Arsenal komst í úrslitaleikinn 2019 og Villarreal vann keppnina í vor. Talið er að Newcastle þyrfti að greiða Villarreal um sex milljónir evra í bætur fyrir að fá Emery sem er með samning við spænska félagið til 2023. Samkvæmt The Athletic er spurningin hins vegar aðeins hvort að Newcastle sé reiðubúið að greiða Emery þau laun sem hann fer fram á. Newcastle hefur verið í stjóraleit eftir að Steve Bruce var rekinn í október. Eitt fyrsta verk nýrra eigenda félagsins frá Sádi-Arabíu var að láta Bruce fara. Graeme Jones stýrir liðinu til bráðabirgða.
Enski boltinn Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Sótillur eftir tapið: „Sóa fyrirhöfn heillar þjóðar“ Fótbolti Arnar tók upp hanskann fyrir FIFA: „Þetta virkar ekki þannig“ Fótbolti Henderson tjáir sig í fyrsta sinn eftir fallið vandræðalega Fótbolti „Hreinlega spilling í gangi ítrekað“ Fótbolti FIFA hafnaði áfrýjun Frakka Fótbolti FIFA styður dómarann sem Trump sagði að væri grunsamlegur Fótbolti Evrópuþingmenn kalla eftir rannsókn á Infantino Fótbolti Hvers vegna tekur Halldór ekki strax við Val? Íslenski boltinn Veikindi herja á norska liðið Fótbolti Fleiri fréttir Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Liverpool hafnaði tilboði í Curtis Jones Sjá meira