Brands farinn: Óvíst hvað verður um Grétar Rafn Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 6. desember 2021 17:00 Grétar Rafn Steinsson. Sky Sports Hollendingurinn Marcel Brands hefur sagt starfi sínu lausu sem yfirmaður knattspyrnumála hjá enska knattspyrnuliðinu Everton. Óvissa ríkir um framtíð Grétars Rafns Steinssonar hjá félaginu en hann er sem stendur yfir leikmannakaupum og þróun leikmanna félagsins.
Vísir greindi frá fyrr í dag að Marcel Brands hefði ákveðið að segja upp þar sem hann væri ekki sammála stefnu Everton. Þetta kom nokkuð á óvart þar sem hann skrifaði undir þriggja ára framlengingu á samningi sínum fyrr á þessu ári. Staðarblaðið Liverpool Echo greinir einnig frá brotthvarfi Brands og veltir fyrir sér hvað verður um hinn 39 ára gamla Grétar Rafn Steinsson. Íslendingurinn er titlaður sem „Head of Recruitment and Development,“ sem þýðir að hann stýrir kaupum félagsins sem og þróun leikmanna. Brands réð Grétar til Everton fyrir þremur árum sem yfirnjósnara innan Evrópu. Síðan hefur Grétar Rafn fengið enn stærra hlutverk hjá félaginu. Hvort Grétar Rafn haldi stöðu sinni, taki við af Brands eða fylgi honum út um dyrnar á svo eftir að koma í ljós. Everton mætir Arsenal í eina leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Liðið er sem stendur í 16. sæti með aðeins 15 stig, fimm stigum fyrir ofan fallsæti.
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið „Var líklegur í að hoppa í ána og segja að þetta sé búið“ Sport Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti „Hann sagði já takk“ Fótbolti Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Enski boltinn Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Fótbolti Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Fótbolti Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Íslenski boltinn Fleiri fréttir Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Loksins sigur hjá Tottenham Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum „Hann kvartar yfir öllu“ Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Löng bið eftir sigri lengist enn Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Sjá meira