Nýr hugarþjálfari United tengdafaðir leikmanns sem er orðaður við félagið Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 8. desember 2021 14:30 Kærustuparið Timo Werner og Paula Lense. getty/Jens Kalaene Sascha Lense, nýr hugarþjálfari Manchester United, er með tengingu í eitt af bestum liðum ensku úrvalsdeildarinnar, Chelsea.
Þýski framherjinn Timo Werner er nefnilega tengdasonur Lenses. Hann hefur verið í sambandi með Paulu, dóttur Lenses, undanfarin fjögur ár. Þau kynntust þegar Werner spilaði með RB Leipzig. Á þeim tíma var Lense hugarþjálfari félagsins. Werner hefur verið orðaður við United að undanförnu og það er spurning hvort koma tengdaföðursins til United muni liðka fyrir mögulegum félagaskiptum. Werner hefur átt erfitt uppdráttar síðan hann kom til Chelsea í fyrra. Hann hefur skorað fimmtán mörk í 64 leikjum fyrir Chelsea. Rangnick og Lense hafa unnið lengi saman, meðal annars hjá Leipzig og Schalke. Rangnick er fullviss um að Lense reynist United vel. „Fyrir mér er þetta algjörlega borðleggjandi. Þetta snýst ekki um að koma leikmönnum á rauða sófann og halda í hönd þeirra. Ef að maður er með sérþjálfara fyrir markvörslu, sóknarleik, líkamsrækt og þolþjálfun, þá ætti maður að vera með heilasérfræðing líka,“ sagði Rangnick. Hann stýrir United í annað sinn þegar liðið tekur á móti Young Boys í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld.
Enski boltinn Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti Úkraínsk tennisstjarna gagnrýnir ákvörðun IOC: „Þetta er hræðilegt“ Sport Haaland orðinn stærri en Manchester City Enski boltinn Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Enski boltinn Conor McGregor segist vera sá besti í sögunni og ætlar að sanna það Sport Lýsandinn, Tevez og Agüero sturluðust þegar Messi jafnaði Fótbolti Skoraði í styrktarleik fyrir móður sína Íslenski boltinn Konurnar fá helminginn af verðlaunafé bandaríska karlalandsliðsins Fótbolti Henderson tjáir sig í fyrsta sinn eftir fallið vandræðalega Fótbolti Fleiri fréttir Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Sjá meira