Ekkert elsku mamma þegar snjóar í Bláfjöllum Rakel Sveinsdóttir skrifar 11. desember 2021 10:00 Lilja Björk Einarsdóttir bankastjóri Landsbankans heldur í þá hefð að senda alltaf jólakort með mynd af fjölskyldunni eða börnum. Sjálf á hún öll jólakort með myndum sem hún hefur fengið í gegnum tíðina. Hvert og eitt einasta. Lilja kúrir lengur um helgar nema þegar snjóar vel í Bláfjöllum: Þá er brunað upp í fjall að skíða. Vísir/Vilhelm Lilja Björk Einarsdóttir bankastjóri Landsbankans vaknar snemma, kúrir þó lengur um helgar nema þegar snjóar vel í Bláfjöllum. Lilja á enn öll jólakort með myndum sem hún hefur fengið en árlegt jólakraftaverk í vinnunni er að klára þriggja ára áætlun fyrir bankann.
Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni. Hvenær vaknar þú á morgnana? „Klukkan 6:50 en dett annað slagið í morgunæfingar og vakna þá um sex, mis-eldhress. Jú, annars, alltaf í góðu skapi. Um helgar sef ég aðeins lengur, hreyfi mig og nýt þess verulega að fá mér góðan kaffibolla. En þegar snjórinn er kominn í Bláfjöll þá er ekkert elsku mamma heldur brunum við í fjallið og erum mætt fyrir tíu." Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana? „Ég græja mig, annað hvort í bankagallann eða hjólagallann ef ég ætla að hjóla í vinnuna. Svo er alltaf morgunmatur og ég renni yfir blöðin sem ég geri á gamla mátann, og gleymi ekki D-vítamíninu á veturna. Ég fæ mér fyrsta bollann í vinnunni og hann er sérstaklega góður.“ Af föstum jóla-hefðum í þínu lífi, hvaða hefð finnst þér alltaf skemmtilegust? „Í sannleika sagt finnst mér best að slaka á og hreyfa mig um jólin, í jöfnum hlutföllum. En af jólahefðum þá held ég í að senda út alvöru jólakort, með mynd af fjölskyldunni eða börnunum. Ég verð sjálfsagt ein eftir með þessa hefð. En svo á ég líka jólakortin með myndum sem ég hef fengið, alveg frá upphafi, hvert eitt og einasta.“ Lilja segir skipulag í vinnunni þurfa að vera gott því bankaumhverfið er bara þannig. Sjálf er hún með 3+2 skipulag sem virkar þannig að fyrstu þrír virku dagar vikunnar fara í fasta fundi en tveir dagar eru til að grípa önnur verkefni, hitta fólk eða sinna öðru. Lilja segist löngu hætt að vera týpan sem þolir ekki að eiga ósvara tölvupósta. Fólk geti þá bara hringt ef erindið er mikilvægt. Vísir/Vilhelm Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana? „Það er svakalega mikið um að vera alls staðar núna og það þarf því að vera á tánum og sjá til þess að allir í bankanum hafi það sem þarf til að mæta tækifærum og sinna viðskiptavinum. Stóra verkefnið mitt akkúrat núna er viðskiptaáætlun næstu þriggja ára. Það er árlegt jólakraftaverk að klára þá vinnu en jafnframt er ég alveg gríðarlega stolt af því sem fer inn í áætlunina og hvernig við náum að samstilla bankann. Þessi vinna verður alltaf betri og það er sérstaklega gaman að vera að vinna undir nýju stefnunni okkar, Landsbanki nýrra tíma. Okkar meginhlutverk er að einfalda viðskiptavinum lífið. Það sem er svo skemmtilegt er að við getum öll tengt við það að einfalda lífið og svo heimfærum við það á það sem hver og einn gerir.“ Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu? „Góð spurning! Bankarekstur er mjög öguð starfsemi og flestar ákvarðanir eru teknar á fundum þar sem mál eru lögð fyrir. Þetta virkar mjög stíft en er gríðarlega skilvirkt ef vel er á málum haldið. Ég er með svona 3+2 skipulag, þrír fyrstu dagarnir í vikunni í reglulega og fasta fundi, og tveir dagar til að grípa annað, hugsa, hitta fólk, læra og plana. Svo er ég alveg hætt að vera týpan sem þolir ekki að eiga ósvaraða tölvupósta, það bítur ekki á mig lengur! Fólk hringir þá bara ef málið er mikilvægt.“ Hvenær ferðu að sofa á kvöldin? „Alltaf seinna en ég vil en um leið og ég get en það er ófrávíkjanleg regla að taka fyrst til vinnufötin og ræktar- eða tennisfötin. Það eitt og sér er það besta sem ég get gert til að undirbúa næsta dag, fyrir utan að lofa að fara fyrr að sofa á morgun.“
Kaffispjallið Íslenskir bankar Tengdar fréttir Engin bólusetning ræður við fjölmiðlabakteríuna Steingrímur Sævarr Ólafsson er kunnugt andlit enda starfaði hann lengi í fjölmiðlum, meðal annars sem fréttastjóri Stöðvar 2. 4. desember 2021 10:01 Svefnvenjurnar að vetri eins og opnunartími í Kringlunni Hera Björk Þórhallsdóttir tónlistarkona og löggiltur fasteignasali segist líka vera almennur „græjari og gerari.“ Til að skipuleggja ólíku verkefnin sín gefur hún þeim heiti í TRELLO eins og FasteignaHera og Ilmur af jólum. 27. nóvember 2021 10:00 190 ástæður fyrir árangrinum segir forstjórinn og nýkrýndur afi Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvá, er í því átaki sem margir þekkja að reyna að rjúka ekki strax í símann þegar hann vaknar. Hermann er nýkrýndur afi, fyrsta barnabarnið fæddist í sumar og það næsta á að fæðast á allra næstu dögum. Fjölskyldan stefnir á að sameinast á Ítalíu um jólin. 20. nóvember 2021 10:00 „Ætli ég væri þá ekki eins og Julia Roberts í Eat, Pray and Love“ Nína Björk Gunnarsdóttir er ljósmyndari, jógakennari og sölufulltrúi á fasteignasölunni Garði. Hún stefnir á nám í löggilta fasteignasalanum næsta haust og aftur í ferðaþjónustu á Ítalíu þegar færi gefst. 13. nóvember 2021 10:01 Liverpool bestir í svarthvíta Finlux túbusjónvarpinu með pabba Í fimmtán ár hefur Hugi Sævarsson, framkvæmdastjóri Birtingahússins, verið í karlahópi í ræktinni sem hefur það markmið að endast lengur á dansgólfinu en aðrir. Fótboltaáhuginn hefur fylgt honum alla tíð en í vinnunni leggur hann áherslu á forgangsröðun verkefna. 6. nóvember 2021 10:01 Mest lesið Vogue og forsetafrúin kveiktu strax en íslenski vinnumarkaðurinn með hindranir Atvinnulíf Gæðin að batna og nóg af klementínum eftir helgi Neytendur Ný útgáfa af konungi jeppans kominn til landsins Samstarf Vilja þvinga Google til að selja Chrome Viðskipti erlent Máttu ekki fullyrða að eldsneytið væri kolefnisjafnað Neytendur Inngildingin: „Íslenska töluð með hreim er samt íslenska“ Atvinnulíf Bjarni ráðinn framkvæmdastjóri vinds og jarðvarma hjá Landsvirkjun Viðskipti innlent Lækka innlánsvexti um heilt prósentustig Viðskipti innlent Opna verslanir í Kringlunni á ný Viðskipti innlent Rekstur fríhafnarinnar seldur úr landi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vogue og forsetafrúin kveiktu strax en íslenski vinnumarkaðurinn með hindranir Inngildingin: „Íslenska töluð með hreim er samt íslenska“ Dæmi: „Tvær konur geta ekki unnið saman því einu sinni áttu þær sama kærasta“ „Unglingsárin voru kannski ekki mín heppilegustu ár“ „Pólitíkin er dugleg í þessu en einkageirinn kann þetta ekki nógu vel“ Að byggja upp vinnustað sem hræðist ekki breytingar Stærðin skiptir ekki máli Ólafur Ingi: „Ég er kostuð eiginkona“ Einróma niðurstaða að Hörður sé eins og Kristján í Frozen „Reglugerðin tekur gildi hvort sem menn hafa þetta hugrekki eða ekki“ Allt í steik: Samtalið við yfirmanninn „Okkur langar til að búa til nýja tegund af bjórmenningu“ „Eitthvað við kvöldin og nóttina sem ég heillast af“ Dýrara að gera ekkert: „Erum öll að pissa í sömu laugina“ Úrelt kerfi: „Síðan kom bara einhver bíll og tæmdi allt“ Sorp: Fólk að hoppa niður plastið í tunnunum til að þjappa því „Ekkert ósvipaður leikur og menn léku í bönkunum fyrir bankahrun“ „Fyrsta verk er án gríns að fá mér lýsi og tékka á Vísi“ Kosningaspenna á vinnustöðum og rifrildi um pólitík Sif Jakobs: „Ekta demantar eru nú einfaldlega ræktaðir“ „Hörðustu samningaviðræðurnar voru við yngsta fólkið Eitraður starfsmaður og góð ráð „Enginn kvartað yfir því þegar ég hef skúrað“ Ekki trompast við fólk í vinnu eða á fundum „Síðan kemur í ljós að við erum í gjörólíkum störfum“ „Opinberi geirinn er að breytast og þar þarf mikinn fjölda verkefnastjóra“ B-týpa sem vill verða A en þarf tíma til að „morgna sig“ Fólki á helst að líða betur eftir vinnudaginn en þegar það mætti Slökkt á asanum: „Hljómar kannski auðveldlega en er það ekki“ Konurnar ofþreyttar en karlmenn vilja meiri frið til að vinna Sjá meira
Engin bólusetning ræður við fjölmiðlabakteríuna Steingrímur Sævarr Ólafsson er kunnugt andlit enda starfaði hann lengi í fjölmiðlum, meðal annars sem fréttastjóri Stöðvar 2. 4. desember 2021 10:01
Svefnvenjurnar að vetri eins og opnunartími í Kringlunni Hera Björk Þórhallsdóttir tónlistarkona og löggiltur fasteignasali segist líka vera almennur „græjari og gerari.“ Til að skipuleggja ólíku verkefnin sín gefur hún þeim heiti í TRELLO eins og FasteignaHera og Ilmur af jólum. 27. nóvember 2021 10:00
190 ástæður fyrir árangrinum segir forstjórinn og nýkrýndur afi Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvá, er í því átaki sem margir þekkja að reyna að rjúka ekki strax í símann þegar hann vaknar. Hermann er nýkrýndur afi, fyrsta barnabarnið fæddist í sumar og það næsta á að fæðast á allra næstu dögum. Fjölskyldan stefnir á að sameinast á Ítalíu um jólin. 20. nóvember 2021 10:00
„Ætli ég væri þá ekki eins og Julia Roberts í Eat, Pray and Love“ Nína Björk Gunnarsdóttir er ljósmyndari, jógakennari og sölufulltrúi á fasteignasölunni Garði. Hún stefnir á nám í löggilta fasteignasalanum næsta haust og aftur í ferðaþjónustu á Ítalíu þegar færi gefst. 13. nóvember 2021 10:01
Liverpool bestir í svarthvíta Finlux túbusjónvarpinu með pabba Í fimmtán ár hefur Hugi Sævarsson, framkvæmdastjóri Birtingahússins, verið í karlahópi í ræktinni sem hefur það markmið að endast lengur á dansgólfinu en aðrir. Fótboltaáhuginn hefur fylgt honum alla tíð en í vinnunni leggur hann áherslu á forgangsröðun verkefna. 6. nóvember 2021 10:01