Agüero neyðist til að hætta Sindri Sverrisson skrifar 13. desember 2021 14:01 Tími Sergio Agüero sem fótboltamanns er á þrotum. Getty/David Ramos Argentínski knattspyrnumaðurinn Sergio Agüero, leikmaður Barcelona, mun á miðvikudag greina formlega frá því að hann sé hættur í fótbolta.
Frá þessu greindi blaðamaðurinn Emilio Pérez de Rozas í útvarpi Marca á Spáni í dag. Sagði hann Barcelona hafa undirbúið kveðjustund fyrir leikmanninn. Barcelona sendi frá sér tilkynningu 1. nóvember um að Agüero yrði frá keppni í að minnsta kosti þrjá mánuði vegna hjartsláttartruflana sem hann hefði fundið fyrir í leik við Alavés tveimur dögum áður. Nú er orðið ljóst að leikirnir verða ekki fleiri hjá þessum 33 ára gamla leikmanni. Agüero náði því aðeins að koma við sögu í fimm leikjum með Barcelona eftir komuna frá Manchester City í sumar. Hjá City var Agüero lykilleikmaður um árabil og hann átti sex leiktíðir þar sem hann skoraði að minnsta kosti 20 mörk í ensku úrvalsdeildinni. Agüero varð fimm sinnum Englandsmeistari með City, einu sinni bikarmeistari og sex sinnum deildabikarmeistari. Hann fagnaði sigri í Copa America í sumar með argentínska landsliðinu og vann með því silfurverðlaun á HM 2014.
Spænski boltinn Mest lesið Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Fleiri fréttir Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Ibrahimagic framlengir við Víking Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ „Það sem svíður mest“ Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Ronaldo segir þjálfarann hafa svikið sig Unnu stórsigur og komu Íslandi í umspil Króatía - Spánn 2-1 | Varamaðurinn bjargaði sigri fyrir Spán Kane með tvennu í öruggum sigri Byrjunarlið Íslands: Fimm breytingar og Gylfi inn Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Sjá meira