Conte: Dyrnar standa Eriksen alltaf opnar Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 7. janúar 2022 20:11 Antonio Conte fékk Eriksen til Inter frá Tottenham á sínum tíma. Claudio Villa - Inter/Inter via Getty Images Antonio Conte, knattspyrnustjóri Tottenham Hotspur, segir að dyrnar standi Christian Eriksen alltaf opnar ef leikmaðurinn vill æfa til að elta draum sinn um að spila á HM í Katar í lok þessa árs.
Eins og flestir vita fór Eriksen í hjartastopp í leik danska landsliðsins gegn því finnska á Evrópumótinu síðasta sumar og hefur ekki leikið knattspyrnu síðan. Hann er í leit að nýju félagi eftir að hafa yfirgefið Ítalíumeistara Inter á dögunum, en lög og reglur ítölsku deildarinnar kveða á um að ekki megi spila þar í landi með ígræddan gangráð. Eriksen lék einmitt undir stjórn Conte hjá Inter, en það var Conte sem fékk hann til félagsins frá Tottenham. Á seinustu dögum hafa myndskeið af Eriksen sparka í bolta birst og hann segist finna formið koma hægt og rólega til baka og vonast til að spila fyrir danska landsliðið á HM í Katar í vetur. Conte var spurður út í Eriksen í vikunni og Ítalinn hrósaði leikmanninum í hástert ásamt því að senda honum þau skilaboð að honum sé velkomið að nýta sér æfingaaðstöðu Tottenham, sem þykir ein sú besta í heimi. „Klárlega, það var frábært að sjá að hann er mættur aftur á völlinn, að sjá hann sparka í bolta,“ sagði Conte. „Það se, gerðist í sumar var alls ekki gott, ekki gott fyrir fólkið sem vinnur með honum og ekki gott fyrir fólkið sem þekkir hann. Ég var hræddur á þessu augnabliki.“ „En að sjá hann tilbúinn að spila fótbolta aftur eru frábærar fréttir. Ég held að dyrnar standi alltaf opnar fyrir Eriksen,“ sagði Conte að lokum.
Enski boltinn Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti „Hann sagði já takk“ Fótbolti Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Enski boltinn Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Fótbolti „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Fleiri fréttir Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Loksins sigur hjá Tottenham Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum „Hann kvartar yfir öllu“ Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Löng bið eftir sigri lengist enn Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Sjá meira