Íslenska landsliðið má spila á Íslandi: Ólafssalur fékk undanþágu frá FIBA Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. janúar 2022 12:13 Martin Hermannsson fær vonandi leyfi frá Valencia til að spila sinn fyrsta heimaleik í meira en tvö ár. FIBA Íslenska karlalandsliðið í körfubolta hefur verið heimilislaust eftir að Laugardalshöllin datt úr vegna vatnsskemmda því liðið fékk ekki leyfi frá FIBA til að spila á heimavelli í undankeppni HM í lok síðasta árs. Nú hefur Ólafssalur á Ásvöllum fengið sérstaka undanþágu frá FIBA.
Í næsta mánuðu fer fram landsliðsgluggi hjá landsliði karla í körfuknattleik þegar liðið á tvo leiki á dagskránni í undankeppni HM 2023 en þeir eru báðir gegn Ítalíu. Leikið verður heima og að heiman en fyrri leikurinn er hér á landi og svo fer sá síðari fram á Ítalíu. Heimaleikur Íslands verður í Ólafssal að Ásvöllum í Hafnarfirði fimmtudaginn 24. febrúar og útileikurinn fer fram sunnudaginn 27. febrúar í Pala Dozza höllinni í Bologna. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá KKÍ. Í nóvember síðastliðnum fékk kvennalandsliðið heimild til að leika í Hafnarfirði með sérstöku leyfi FIBA og tókst það vel til. FIBA hefur samþykkt sérstaka ósk KKÍ um að leika heimaleikinn í Ólafssal að Ásvöllum með því að uppfylla aftur kröfur FIBA um allan búnað og aðstöðu. Laugardalshöllin er enn óstarfhæf líkt og áður og sér ekki fyrir endann á því hvenær hún verður tilbúin til notkunar á ný. FIBA gaf leyfi nú fyrir Ólafssal fyrir þessum eina heimaleik þar sem ríkisstjórn Íslands hefur sett málefni þjóðarleikvangs inniíþrótta í forgang og í vor á að vera kominn niðurstaða í þá vinnu. Það kostar aukavinnu og hjálpa frá Laugardalshöll til að færa heimaleikinn yfir á Ásvelli. KKÍ þarf að fá talsvert af búnaði að láni frá Laugardalshöll svo hægt sé að gera Ólafssal leikhæfan samkvæmt kröfum FIBA.
HM 2023 í körfubolta Hafnarfjörður Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Vinirnir deila heimsmetinu en hvorugur er sigurvegari Sport Uppgjörið: Grindavík - Stjarnan 98-90 | Fyrsti sigur Grindavíkur en Stjarnan bíður enn Körfubolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Fleiri fréttir „Kærkominn“ og „lífsnauðsynlegur“ sigur „Ég hef áhyggjur en ég er ekki áhyggjufullur“ „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ „Vonandi ekki okkar einkennismerki“ Uppgjörið: Grindavík - Stjarnan 98-90 | Fyrsti sigur Grindavíkur en Stjarnan bíður enn Uppgjörið: Njarðvík-Valur 85-93 | Ólík staða eftir öruggan Valssigur Uppgjörið: KR - Ármann 108-74 | Frystir í Frostaskjóli Uppgjörið: Höttur - ÍR 108-96 | Heimamenn sterkari í seinni Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Sýður á Hlyni eftir að met hans var bætt Sex handtekin vegna hrikalegs hneykslis í grískum körfubolta „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Er skrefareglan dauð í NBA? Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Sjá meira