Þættirnir hafa verið í framleiðslu hjá Amazon Studios um árabil og eiga að gerast þúsundum ára á undan Hringadróttinssögu og Hobbitanum.
Í myndbandi þar sem nafnið var opinberað má heyra konu segja (lauslega þýtt(mjög)): „Þrjá hringi fyrir konunga álfa undir himninum. Sjö fyrir lávarða dverga í sölum þeirra úr steini. Níu fyrir mennska dauðadæmda menn. Einn fyrir myrkrahöfðingjann á hásæti hans í landi Mordor þar sem skugginn liggur yfir.“
A new age begins September 2, 2022. Journey to Middle-earth with The Lord of the Rings: The Rings of Power. #LOTRonPrime #LOTR #LOTRROP pic.twitter.com/KWAokaVeWW
— The Lord of the Rings on Prime (@LOTRonPrime) January 19, 2022
Segja nafnið fanga alla öldina
Nafnið Rings of Power gefur til kynna að þættirnir muni gerast á þeim tíma þegar vondi karlinn Sauron gabbaði Celebrimbor og aðra álfa í Eregion til að smíða hringa. Hann smíðaði svo sinn eigin hring sem gerði honum kleift að ná stjórn á mörgum þeim sem báru hina hringana.
Eins og flestir vita, þá fjallar Hringadróttinssaga um baráttuna gegn Sauron á þriðju öld Miðgarðs og tilraunir til að granda honum og hring hans.
Variety vitnar í tilkynningu frá J.D Payne og Patrick McKay, sem gera þættina, þar sem þeir segja nafnið sameina allt það sem gerist á annari öld Miðgarðs. Smíði hringanna, upprisu Sauron, sögu eyjunnar Númenor og síðasta bandalag álfa og manna.
Glöggir lesendur muna ef til vill eftir því að kvikmyndir Peter Jackson um Hringadróttinssögu byrja á síðustu orrustu þessa bandalags, þar sem Isildur skar hringinn af hönd Sauron en neitaði að granda honum.