Lífið

Stockfish hækkar verðlaunafé í stuttmyndasamkeppninni Sprettfiskur

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Frá verðlaunaafhendingu Sprettfisksins á síðasta ári. Marzibil Sæmundardóttir framkvæmdastjóri hélt ræðu og Tinna Hrafnsdóttir tilkynnti úrslit dómnefndar.
Frá verðlaunaafhendingu Sprettfisksins á síðasta ári. Marzibil Sæmundardóttir framkvæmdastjóri hélt ræðu og Tinna Hrafnsdóttir tilkynnti úrslit dómnefndar. Stockfish

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Sprettfisk, stuttmyndasamkeppni Stockfish kvikmyndahátíðarinnar sem haldin verður í áttunda sinn dagana 24. mars til 3. apríl á þessu ári. Umsóknarfrestur stendur til 10. febrúar næstkomandi.

Keppt verður í fjórum flokkum og mun sigurvegari hvers flokks hljóta verðlaun að verðmæti allt að tveggja milljóna króna samkvæmt tilkynningu frá Stockfish hátíðinni. Markmið keppninnar er að vekja athygli á hæfileikaríku og upprennandi kvikmyndagerðarfólki og hvetja til frekari dáða með veglegum verðlaunum sem leggja grunninn að næsta verkefni.

Segir í tilkynningunni að talsverðar breytingar hafi verið gerðar á Sprettfisk í þetta skiptið með það að markmiði að þjóna og vekja athygli á breiðari hópi kvikmyndagerðafólks og kvikmyndaverka.

Myndin Kitchen By Measure/Eldhús eftir máli var valinn sigurvegari keppninnar á síðasta ári en sérstaka viðurkenningu hlaut kvikmyndin Spaghetti/Spagettí eftir Egil Gauta Sigurjónsson og Nikulás Tuma Hlynsson.

„Sprettfiskur verður haldinn á fjórum keppnisbrautum þar sem stutt skáldverk, heimildaverk, tilraunaverk og tónlistaverk eru aðskilin. Fimm verk verða valin úr innsendingum til að keppa í hverjum flokki fyrir sig. Sigurvegarar hverrar brautar hljóta verðlaunafé í boði Símans og úttekt hjá tækjaleigu Kukl,“ segir um keppnina í ár. 

Hér fyrir neðan má sjá lista yfir verðlaun stuttmyndakeppninnar en nánari upplýsingar um umsóknarskilyrði og þátttökufrest er að finna á vef Stockfish kvikmyndahátíðarinnar

1 - Skáldverk

Verðlaunafé: 1.000.000 kr

Tækjaleiga: 1.000.000 kr

2 - Heimildarverk

Verðlaunafé: 500.000 kr

Tækjaleiga: 500.000 kr

3 - Tilraunaverk

Verðlaunafé: 250.000 kr

Tækjaleiga: 250.000 kr

4 - Tónlistaverk

Verðlaunafé: 250.000 kr

Tækjaleiga: 250.000 kr


Tengdar fréttir

Atli og Sólrún Ylfa unnu Sprettfiskinn

Í gær var lokakvöld Stockfish kvikmyndahátíðarinnar í Bíó Paradís og sigurvegari í stuttmyndasamkeppninni Sprettfiskurinn kynntur. Myndin Kitchen By Measure/Eldhús eftir máli var valinn sigurvegari keppninnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.