Áhorfandi nældi í tæknivillu á þjálfara Stjörnunnar Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 6. febrúar 2022 08:02 Gunnlaugur Briem gefur Arnari tæknivillu við litla hrifningu þess síðarnefnda. Stöð 2 Sport Skondið atvik átti sér stað í leik Stjörnunnar og Þórs frá Akureyri sem fram fór í Garðabænum síðastliðinn fimmtudag þegar áhorfandi varð þess valdandi að þjálfari Stjörnunnar fékk tæknivillu. „Það var það mikil stemning í húsinu að áhorfendur fengu tæknivillu,“ sagði Kjartan Atli Kjartansson, stjórnandi Subway Körfuboltakvölds í upphafi innslagsins. Seint í þriðja leikhluta fóru Þórsarar í sókn og Bouna Ndiaye reyndi þriggja stiga skot. Í þann mund sem hann lét vaða kallaði áhorfandi úr stúkunni fyrir ofan varmannabekk Stjörnunnar til þess að reyna að trufla skotið. Gunnlaugur Briem, dómari leiksins, hélt þó að Arnar Guðjónsson, þjálfari Stjörnunnar, hefði gefið frá sér hljóðið. Ekki er leyfilegt að trufla skot andstæðingsins með þessum hætti og Gunnlaugur gaf Arnari því tæknivillu. Eins og gefur að skilja var Arnar allt annað en sáttur við dóminn og lét vel í sér heyra. Eftir að hafa ráðfært sig við hina dómara leiksins áttaði Gunnlaugur sig á því að hann hafði gert mistök og bað Arnar afsökunar og tók tæknivilluna til baka, en þetta skondna atvik má sjá í spilaranum hér fyrir neðan. Klippa: Subway Körfuboltakvöld: Áhorfandi fær tæknivillu
Það var það mikil stemning í húsinu að áhorfendur fengu tæknivillu,“ sagði Kjartan Atli Kjartansson, stjórnandi Subway Körfuboltakvölds í upphafi innslagsins. Seint í þriðja leikhluta fóru Þórsarar í sókn og Bouna Ndiaye reyndi þriggja stiga skot. Í þann mund sem hann lét vaða kallaði áhorfandi úr stúkunni fyrir ofan varmannabekk Stjörnunnar til þess að reyna að trufla skotið. Gunnlaugur Briem, dómari leiksins, hélt þó að Arnar Guðjónsson, þjálfari Stjörnunnar, hefði gefið frá sér hljóðið. Ekki er leyfilegt að trufla skot andstæðingsins með þessum hætti og Gunnlaugur gaf Arnari því tæknivillu. Eins og gefur að skilja var Arnar allt annað en sáttur við dóminn og lét vel í sér heyra. Eftir að hafa ráðfært sig við hina dómara leiksins áttaði Gunnlaugur sig á því að hann hafði gert mistök og bað Arnar afsökunar og tók tæknivilluna til baka, en þetta skondna atvik má sjá í spilaranum hér fyrir neðan. Klippa: Subway Körfuboltakvöld: Áhorfandi fær tæknivillu Subway-deildirnar í körfubolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Subway-deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði.
Subway-deildirnar í körfubolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Subway-deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði.
Subway-deild karla Körfuboltakvöld Stjarnan Garðabær Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport „Gangandi martröð“ Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Ipswich - Liverpool | Kemur fyrsti sigurinn? Enski boltinn Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Enski boltinn Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu Formúla 1 Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Körfubolti Sjáðu rauða spjaldið sem Gísli fiskaði og fékk svo sjálfur Handbolti Fleiri fréttir Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Óíþróttamannslega villan heyrir sögunni til og KKÍ auglýsir eftir nöfnum á nýju villurnar Berglind Katla fer í skóla í New York Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Sindri fær sænskan landsliðsmann Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Jón Arnór byrjar að þjálfa Grindavík mokar inn verðlaunum Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Sjá meira