Framtíð Nágranna í mikilli hættu Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 7. febrúar 2022 08:55 Hjónunum Susan og Karl Kennedy, leikin af Jackie Woodburne og Alan Fletcher, hefur líklega brugðið við tíðindin. Fremantle/Channel 5 Óvíst er hvort að framleiðslu áströlsku sápuóperunnar vinsælu Nágranna verði haldið áfram. Sjónvarpsstöðin sem borgar brúsann fyrir framleiðslu þáttanna hefur ákveðið að skrúfa fyrir kranann.
Fjallað var um málið í áströlskum fjölmiðlum yfir helgina. Í frétt Sydney Morning Herald kemur fram að framleiðslufyrirtæki þáttanna, Fremantle Media, og breska sjónvarpsstöðin Channel 5 hafi ekki náð saman um nýjan samning um framleiðslu þáttanna. Fjármagn til framleiðslu þáttanna hefur á undanförnum árum að megninu til komið frá Channel 5, sem sýnir þættina í Bretlandi. Án fjármagns þaðan er illmögulegt að halda framleiðslu áfram. Talið er að framleiðsla þáttanna kosti um tuttugu milljónir ástralska dollara á ári, um 1,7 milljarð króna. Fremantle Media hefur því tilkynnt að án samnings frá Bretlandi sé ekki hægt að halda framleiðslu áfram mikið lengur, því verði framleiðslu þáttanna hætt í sumar, í júní nánar tiltekið. Verið er að reyna að finna annan breskan samstarfsaðila. „Þær viðræður eru í gangi, en það liggur ekkert fyrir um nýjan sýningaraðila og þess vegna þarf að hætta framleiðslu, og setja þáttinn þar með á ís,“ er haft eftir Jason Herbison, framkvæmdastjóra Fremantle Media. Uppeldisstöð Hollywood-stjarna Ástralíu Neighbours hóf göngu sína í áströlsku sjónvarpi árið 1985. Þættirnir eru sýndir í Ástralíu á sjónvarpsstöð sem nefnist Network Ten. Þar á bæ vonast menn til þess að geta haldið þáttunum áfram á lífi, en það veltur mjög á því hvort að Fremantle takist að semja við sýningaraðila í Bretlandi. Nágrannar eru Íslendingum góðkunnir enda hafa þeir verið sýndir á Stöð 2 hér á landi um árabil. Þættirnir hafa verið uppeldisstöð margra af helstu stjörnum ástralskrar leiklistar. Má þar nefna Russel Crowe, Liam Hemsworth, Margot Robbie, Guy Pearce og Kylie Minouge, svo dæmi séu tekin. Aðdáendur þáttanna hafa ekki tekið fregnunum vel. Hefur undirskriftarsöfnun verið sett af stað til að hvetja Channel 5 til aðendurskoða ákvörðun sína. Hátt í tuttugu þúsund manns hafa skrifað undir þegar þetta er skrifað.
Ástralía Bretland Bíó og sjónvarp Tengdar fréttir Boða ótrúlega endurkomu Dee þremur árum eftir að tvífari hennar plataði Toadie upp úr skónum Það ætlaði allt að verða vitlaust þegar forsvarsmenn Nágranna tilkynntu árið 2016 að hin vinsæla persóna Dee Bliss myndi snúa aftur í þáttinn eftir vofeiglegan dauða hennar 13 árum áður. Í ljós kom þó síðar að um tvífara hennar væri að ræða. Nú hafa aðstandendur þáttarins hins vegar tilkynnt að Dee muni snúa aftur, í alvörunni í þetta skiptið. 25. júní 2019 11:30 Nágranna-stjarna átti erfitt með að lifa ódýrt á Íslandi James Mason, sem leikur Chris Pappas í Nágrönnum, ber Íslendingum söguna vel og segir þá sérstaklega indæla. 15. september 2015 12:30 Alan Fletcher hágrét þegar Karl og Susan skildu „Það var atriði þar sem hann þurfti að horfa í augun á henni og segja: „Ég elska þig ekki lengur.“ Við hágrétum í kringum þetta atriði." 9. janúar 2015 12:16 Dee sneri á dauðann og snýr aftur í Nágranna Ein vinsælasta persóna Nágranna frá upphafi snýr aftur eftir 13 ára fjarveru. 16. september 2016 11:24 Mest lesið Frumsýning á Vísi: Steindi og Saga með nýja sketsaseríu um jólin Bíó og sjónvarp Frambjóðendur stigu trylltan dans með unga fólkinu Lífið Adele kveður sviðið um óákveðinn tíma Lífið Hvað eru konur í framboði að hlusta á? Lífið Hraðfréttir verða Hlaðfréttir Lífið Ferðast umhverfis jörðina á 38 dögum Lífið Krakkatían: Eyðimerkur, býflugur og kjólar Lífið Sjáðu Nínu Dögg sem Vigdísi í fyrstu stiklunni Bíó og sjónvarp Eitt fallegasta hús landsins tilbúið Lífið Eins og að setja bensín á díselbíl Heilsa Fleiri fréttir Frumsýning á Vísi: Steindi og Saga með nýja sketsaseríu um jólin Sjáðu Nínu Dögg sem Vigdísi í fyrstu stiklunni Stjörnufans þegar hundruð kíktu á forsýningu Iceguys 2 Sýn, Síminn og RÚV standa að baki nýjum sjónvarpsverðlaunum Halda til Spánar að smakka messuvín fyrir þjóðkirkjuna Hundrað ára viðkvæmni Íslendinga: „Leið daglega yfir 40 til 50 manns“ Stórstjörnur flykkjast í verkefni Baltasars Ljósbrot verðlaunuð af Evrópsku kvikmyndaakademíunni Stórstjarna úr tónlistarheiminum í nýrri seríu White Lotus Brynjar Morthens leikur Bubba Morthens Frumsýning á Vísi: IceGuys dæmdir til samfélagsþjónustu í seríu tvö Hrekkjavökumyndir til að hafa í huga fyrir kvöldið Ulf Pilgaard er látinn Vilja gefa út síðustu þættina með Payne Frumsýning á Vísi: Bannað að hlæja í boði sem er bannað börnum Bíó Paradís heiðrað af blindum Hollywood stjörnur við Höfða Lá beinast við að gera mynd um Laugavegshlaupið Lýsir augnablikinu þegar hann náði Örnu á sitt band Man ekki eftir öðru eins: Aldrei séð jafn marga falla í yfirlið yfir einni mynd Torfi vinnur að því að koma Minecraft á hvíta tjaldið Fögnuðu væntanlegri komu Eftirmála á sjónvarpsskjáinn Super Happy Forever hlaut Gullna lundann Fagnaðarfundir þegar Bong Joon-Ho hitti Dag Kára Óhappamynd Alec Baldwin brátt frumsýnd Sjá meira
Boða ótrúlega endurkomu Dee þremur árum eftir að tvífari hennar plataði Toadie upp úr skónum Það ætlaði allt að verða vitlaust þegar forsvarsmenn Nágranna tilkynntu árið 2016 að hin vinsæla persóna Dee Bliss myndi snúa aftur í þáttinn eftir vofeiglegan dauða hennar 13 árum áður. Í ljós kom þó síðar að um tvífara hennar væri að ræða. Nú hafa aðstandendur þáttarins hins vegar tilkynnt að Dee muni snúa aftur, í alvörunni í þetta skiptið. 25. júní 2019 11:30
Nágranna-stjarna átti erfitt með að lifa ódýrt á Íslandi James Mason, sem leikur Chris Pappas í Nágrönnum, ber Íslendingum söguna vel og segir þá sérstaklega indæla. 15. september 2015 12:30
Alan Fletcher hágrét þegar Karl og Susan skildu „Það var atriði þar sem hann þurfti að horfa í augun á henni og segja: „Ég elska þig ekki lengur.“ Við hágrétum í kringum þetta atriði." 9. janúar 2015 12:16
Dee sneri á dauðann og snýr aftur í Nágranna Ein vinsælasta persóna Nágranna frá upphafi snýr aftur eftir 13 ára fjarveru. 16. september 2016 11:24