Hvöss norðanátt víða á landinu Atli Ísleifsson skrifar 24. febrúar 2022 09:40 Það léttir til sunnan- og vestanlands með vetrarsól. Veðurstofan Framan af degi er hvöss norðanátt nokkuð víða á landinu og skafrenningur, auk þess að það snjóar norðan- og austanlands. Það lægir smám saman í dag.
Þetta kemur fram á vef Veðurstofunnar. Þar segir að það létti til sunnan- og vestanlands með vetrarsól. „Minnkandi éljagangur á Norður- og Austurlandi. Það kólnar í veðri, búast má við frosti kringum 10 stigin inn til landsins í kvöld. Þegar þetta er skrifað er enn ein vaxandi lægðin við Nýfundnaland og stefnir hún til norðausturs í dag og nálgast okkur. Þessi lægð veldur óveðri á landinu á morgun. Þá má búast við suðaustan stormi eða roki með snjókomu og síðar talsverðri slyddu eða rigningu. Hlýnar í veðri, hiti 1 til 6 stig síðdegis. Úrkomulítið um landið norðaustanvert og hiti kringum frostmark. Undir kvöld á morgun snýst í allhvassa sunnanátt á Suður- og Vesturlandi með skúrum eða slydduéljum. Snýst einnig í hægari sunnanátt á norðan- og austanverðu landinu seint annað kvöld,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Búið er að gefa út gular viðvaranir fyrir höfuðborgarsvæðið, Suðurland, Faxaflóa, Breiðafjörð, Vestfirði og Miðhálendi frá morgundeginum. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Sunnan og suðvestan 8-15 m/s og él, en bjartviðri um landið NA-vert. Kólnandi, frost víða 0 til 5 stig um kvöldið. Á sunnudag: Sunnan 3-10 og dálítil él, en léttskýjað á N- og A-landi. Vaxandi austanátt syðst um kvöldið. Frost 0 til 8 stig, kaldast í innsveitum fyrir norðan. Á mánudag: Norðaustanátt og snjókoma, en úrkomulítið V-til á landinu. Hiti um eða undir frostmarki. Slydda eða rigning um tíma SA-lands og frostlaust þar. Á þriðjudag: Suðlæg átt, stöku él og hiti kringum frostmark, en yfirleitt léttskýjað á NA- og A-landi með frosti að 5 stigum. Á miðvikudag: Suðaustanátt og slydda eða rigning, en þurrt N-lands.
Veður Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent Fleiri fréttir Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Sjá meira