Kröpp lægð gengur yfir austanvert landið Atli Ísleifsson skrifar 9. mars 2022 07:10 Seinnipartinn verður lægðin komin norður fyrir land og þá snýst í suðvestan með éljum og kólnandi veðri. Vísir/RAX Kröpp lægð gengur nú yfir austanvert landið og veldur hún suðaustan hvassviðri eða stormi með rigningu austantil á landinu fram eftir morgni. Mun hægari vindur og úrkomuminna er í öðrum landshlutum.
Hiti verður á bilinu núll til sex stig í dag að því er segir á vef Veðurstofunnar. Gul viðvörun er í gildi fyrir Austfirði til klukkan 11. „Seinnipartinn verður lægðin komin norður fyrir land og þá snýst í suðvestan 8-15 m/s með éljum og kólnandi veðri, en styttir upp á Norðaustur- og Austurlandi. Á morgun ganga svo næstu skil inn á land. Víða allhvöss suðaustan- og austanátt og rigning eða slydda, og talsverð rigning á Suðausturlandi, en snjókoma með köflum norðvestantil fram eftir degi. Á Norðausturlandi verður hins vegar þurrt að mestu og yfirleitt háskýjað. Hlýnar aftur, hiti 2 til 8 síðdegis,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákortið fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Gengur í suðaustan og austan 10-18 m/s. Rigning eða slydda, og talsverð úrkoma SA-lands, en snjókoma með köflum NV-til fram eftir degi. Úrkomulítið á NA-landi. Hlýnandi, hiti 2 til 8 síðdegis og dregur þá úr vindi V-lands. Á föstudag: Suðaustan og sunnan 10-18 og rigning eða skúrir, og talsverð rigning SA-til fram eftir degi, en úrkomulítið á N-landi. Hægari um kvöldið. Hiti 4 til 11 stig. Á laugardag: Sunnan 8-13 og él, en léttir til á N- og A-landi. Kólnandi, hiti um og yfir frostmarki seinnipartinn. Á sunnudag: Austlæg eða breytileg átt 3-10 og dálitlar skúrir eða él, en bjart með köflum fyrir norðan. Hiti 0 til 5 stig. Á mánudag: Vaxandi suðaustanátt og fer að rigna síðdegis, en þurrt að kalla á N- og A-landi. Hlýnar í veðri. Á þriðjudag: Útlit fyrir suðvestanátt með éljum, en bjartviðri um landið NA-vert. Kólnar smám saman.
Veður Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent Fleiri fréttir Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Sjá meira