Eva Rós, Hafsteinn Gauti og Jóhann Óli til Deloitte Legal Atli Ísleifsson skrifar 21. mars 2022 17:50 Eva Rós Haraldsdóttir, Hafsteinn Gauti Ágústsson og Jóhann Óli Eiðsson. Aðsend Lögfræðingarnir Jóhann Óli Eiðsson, Hafsteinn Gauti Ágústsson og Eva Rós Haraldsdóttir hafa öll verið ráðin til lögmannsstofunnar Deloitte Legal.
Frá þessu segir í tilkynningu frá stofunni. „Jóhann Óli kemur til Deloitte Legal frá Viðskiptablaðinu en þar hafði hann starfað frá vormánuðum 2019 sem blaðamaður og skrifaði einna helst um dómsmál, lögfræðitengd álitaefni og skattaréttarleg mál. Áður hafði hann verið frá 2014 á fréttastofu 365, þá bæði á Vísi og Fréttablaðinu, en fjölmiðlaferillinn hófst skömmu eftir lok grunnskóla hjá Fótbolta.net. Jóhann Óli lauk BA-prófi frá lagadeild Háskóla Íslands árið 2019 og mun ljúka meistaranámi við sama skóla núna í vor. Hafsteinn kemur til Deloitte Legal frá Eftirlitsstofnun EFTA í Brussel. Hjá ESA starfaði hann á samkeppnis- og ríkisaðstoðarsviði. Þá hefur hann einnig gegnt hlutverki aðstoðarkennara hjá Háskóla Íslands. Helstu sérsvið Hafsteins eru samkeppnisréttur, ríkisaðstoðarréttur og Evrópuréttur og mun hann styðja við uppbyggingu þeirrar þjónustulínu innan Deloitte Legal. Hafsteinn lauk BA-prófi frá lagadeild Háskóla Íslands árið 2018 og lauk meistaranámi árið 2020. Eva Rós kemur til Deloitte Legal frá lögmannsstofunni BBA Fjeldco en þar hafði hún starfað frá ágúst 2020. Áður hafði hún verið hjá KPMG og eru hennar helstu sérsvið skattaréttur, bæði innlendur og alþjóðlegur, og félagaréttur. Þá býr Eva Rós yfir ríkri þekkingu á sviði virðisaukaskatts og mun hún styðja við frekari uppbyggingu þeirrar þjónustulínu innan Deloitte Legal. Eva Rós lauk BA-prófi frá Háskólanum í Reykjavík árið 2018 og lauk meistaranámi árið 2020,“ segir í tilkynningunni.
Vistaskipti Mest lesið Fær nokkuð jákvæð viðbrögð þegar hann vandar sig í eldhúsinu Atvinnulíf Nýir eigendur Pylsuvagnsins á Selfossi Viðskipti innlent Borguðu vaskinn sama dag og tilkynnt var um gjaldþrotið Viðskipti innlent „Bankinn tekur höggið á sig að stórum hluta“ Viðskipti innlent Hækka ekki verðtryggðu vextina Viðskipti innlent ASÍ fordæmir hækkun vaxta og Þórhallur sendi bankanum bréf Neytendur Hækka verðtryggða vexti og útskýra hvers vegna Viðskipti innlent Knattspyrnukappi á Skaganum ráðinn fjármálastjóri Viðskipti innlent Ný útgáfa af konungi jeppans kominn til landsins Samstarf Vogue og forsetafrúin kveiktu strax en íslenski vinnumarkaðurinn með hindranir Atvinnulíf Fleiri fréttir Knattspyrnukappi á Skaganum ráðinn fjármálastjóri Nýir eigendur Pylsuvagnsins á Selfossi Borguðu vaskinn sama dag og tilkynnt var um gjaldþrotið Hækka ekki verðtryggðu vextina „Bankinn tekur höggið á sig að stórum hluta“ Mikilvægt að verja þær gjaldeyristekjur sem ferðaþjónustan aflar Kerecis fólk fjárfestir í flugi Hækka verðtryggða vexti og útskýra hvers vegna Bjarni ráðinn framkvæmdastjóri vinds og jarðvarma hjá Landsvirkjun Lækka innlánsvexti um heilt prósentustig Opna verslanir í Kringlunni á ný Nýtt veitingasvæði rís í Smáralind Kristján ráðinn til Advania Bein útsending: Raforkuöryggi, fyrir hverja? „Grindavíkuráhrifin“ að fjara út Vilja afnema álag á útsvar í Árborg á næsta ári Rekstur fríhafnarinnar seldur úr landi Vaxtalækkun gleðitíðindi en vextir ennþá „allt of háir“ Rannveig kveður: 124 fundir og „aldrei lognmolla“ Skýr merki um að verðbólga sé að hjaðna Ráðin framkvæmdastjórar hjá Sóltúni Krefst þess að Sorpa stofni hlutafélag Vaxtaákvörðun peningastefnunefndar rökstudd Tilkynnir um breytta vexti nokkrum mínútum eftir stýrivaxtalækkun Stýrivextir halda áfram að lækka Útboð SÍ stöðvað og Intuens fagnar sigri Samtökin '78 selja slotið Allir spá lægri vöxtum Grindvíkingar geta nú gerst „hollvinir“ seldra húsa sinna Samkaup koma inn á bókamarkaðinn með látum Sjá meira