Lífið

Kári og Ragnar tóku í gegn unglingaherbergi Ísabellu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ísabella var sátt við útkomuna. 
Ísabella var sátt við útkomuna. 

Ljósmyndarinn Kári Sverrisson og innanhússarkitektinn Ragnar Sigurðsson fóru af stað með nýja þætti á Stöð 2 á árinu sem bera heitið Bætt um betur en í þáttunum taka þeir ýmiskonar rými í gegn og gera fallegri.

Í þættinum í síðustu viku tóku þeir til hendinni á eigin heimili en verkefnið var að taka unglingaherbergi dóttur Kára í gegn en Ísabella Krístin Káradóttir hafði sjálf ákveðnar hugmyndir hvernig herbergið ætti að líta út.

Hér að neðan má sjá hvernig verkefnið gekk fyrir sig en næsti þáttur er á dagskrá Stöðvar 2 í kvöld. Hægt er að sjá þáttinn í heild sinni á Stöð 2+.

Klippa: Kári og Ragnar tóku í gegn unglingaherbergi Ísabellu





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.