Leikur Lyon hrundi eftir rautt spjald Carpenter: Sjáðu mörkin og helstu atvik Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 23. mars 2022 19:45 Agnese Bonfantini fagnar því sem reyndist sigurmark kvöldsins. Marco Luzzani/Getty Images Juventus vann 2-1 sigur á Lyon í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta í kvöld. Lyon var með pálmann í höndunum en Ellie Carpenter fékk rautt spjald í liði Lyon og heimakonur nýttu liðsmuninn til hins ítrasta. Landsliðsfyrirliðinn Sara Björk Gunnarsdóttir sat allan tímann á bekk Lyon í kvöld. Gestirnir frá Frakklandi byrjuðu betur í Tórínó í kvöld en Lyon komst yfir eftir aðeins átta mínútna leik. Bandaríski miðjumaðurinn Catarina Macario með markið eftir sendingu Selmu Bacha. MACARIO GIVES @OLfeminin THE LEAD https://t.co/vuIBt12Xmk https://t.co/ZKMU1eRKpZ https://t.co/EgCpFUtvFW pic.twitter.com/Ess7xqjFd5— DAZN Football (@DAZNFootball) March 23, 2022 Reyndist það eina mark fyrri hálfleiks en gestirnir voru hársbreidd frá því að bæta við marki. Frábær varnarleikur kom í veg fyrir það og átti það eftir að reynast heldur betur mikilvægt. OFF THE LINE, what a clearance https://t.co/vuIBt12Xmk https://t.co/ZKMU1eRKpZ https://t.co/EgCpFUtvFW pic.twitter.com/7iCBlUimB3— DAZN Football (@DAZNFootball) March 23, 2022 Gestirnir voru þó í toppmálum er liðin gengu til búningsherbergja í hálfleik, staðan 1-0 þeim í vil og Lyon með öll völdin á vellinum. Það virtist slíkt hið sama vera upp á teningnum í síðari hálfleik, það er þangað til þegar rúmur klukkutími var liðinn. Ellie Carpenter, miðvörður Lyon, leyfði boltanum að skoppa upp í loft og ætlaði svo að rekja hann í átt að eigin marki. RED CARD Ellie Carpenter is shown a straight red, HUGE MOMENT IN THIS GAME https://t.co/vuIBt12Xmk https://t.co/ZKMU1eRKpZ https://t.co/EgCpFUtvFW pic.twitter.com/azCkk2V9s0— DAZN Football (@DAZNFootball) March 23, 2022 Í kjölfarið stakk framherji Juventus sér inn fyrir Carpenter sem endaði með því að rífa leikmann heimaliðsins niður og þó hún væri rúmlega 40-45 metra frá marki þá fékk hún beint rautt spjald fyrir að brjóta á leikmanni sem var sloppin ein í gegn. Í kjölfarið tók Juventus öll völdin á vellinum. Cristiana Girelli jafnaði metin eftir klaufagang í vörn gestanna og Agnese Bonfantini skoraði það sem reyndist sigurmarkið á 83. mínútu leiksins. . @JuventusFCWomen ARE LEVEL @cristianagire bundles home to set up a dramatic finish https://t.co/vuIBt12Xmk https://t.co/ZKMU1eRKpZ https://t.co/EgCpFUtvFW pic.twitter.com/oyh1Bfa32P— DAZN Football (@DAZNFootball) March 23, 2022 JUVENTUS ARE AHEAD Super-sub Agnese Bonfantini turns the game on its head for @JuventusFCWomen https://t.co/vuIBt12Xmk https://t.co/ZKMU1eRKpZ https://t.co/EgCpFUtvFW pic.twitter.com/LOUTqB4fK3— DAZN Football (@DAZNFootball) March 23, 2022 Þrátt fyrir gríðarlegan uppbótartíma tókst hvorugu liðinu að bæta við marki og Juventus leiðir því 2-1 fyrir síðari leik liðanna sem fram fer í Frakklandi eftir átta daga. Landsliðsfyrirliðinn Sara Björk spilaði 45 mínútur fyrir Lyon um liðna helgi en sat að þessu sinni allan tímann á varamannabekk liðsins. Hún er hægt og bítandi að komast í sitt gamla form eftir barnsburð. Meistaradeild Evrópu í fótbolta kvenna Fótbolti
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti