Uppskriftir Heimkaupa munu birtast hér á Vísi og hægt að nálgast allt hráefnið á Heimkaup.is
Morgunverðar burrito

Morgunverðar burrito er einstaklega góð í brönsinn, upprúlluð tortilla vefja með eggjum, salsa sósu, baunum, spínati og cheddar osti.
Smelltu hér til að nálgast allt hráefnið.
Hráefni
- 1 pakki tortilla pönnukökur
- 1 dós salsa sósa
- 1/2 dós baunir
- Spínat eftir smekk
- 6-8 stk egg
- Rjómaostur
- Rifinn cheddar ostur
Aðferð
Byrjið á að steikja eggin á pönnu upp úr olíu og kryddið með salti og pipar
Sigtið vatnið frá baununum og skolið þær aðeins með köldu vatni, bætið þeim á pönnuna með eggjunum og hitið svolítið
Smyrjið tortilluna með rjómaosti og salsa sósu og stráið cheddar osti í miðjuna
Setjið spínat í miðjuna eftir smekk, næst eru eggjunum & baununum raðað á tortilluna
Rúllið pönnunkökunni upp, gott er að brjóta hana eins og umslag til þess að innihaldið leki ekki úr.
Pönnsur með Nutella

Þessar pönnukökur toppa allt, með ferskum berjum, sírópi og Nutella súkkulaðismjöri verður brönsinn fullkominn!
Smelltu hér til að nálgast allt hráefnið í uppskriftina.
Hráefni
- 1 bolli hveiti
- 1½ tsk lyftiduft
- ¼ tsk salt
- 1 bolli mjólk
- 1 egg
- 1 msk brætt smjör
- 1 tsk vanilludropar
Aðferð
Byrjið á að hræra saman í skál, hveiti, lyftidufti og salti í skál.
Bræðið smjörið og leyfið því aðeins að kólna áður en þið bætið því saman við hveiti blönduna ásamt mjólkinni og eggjunum og hrærið vel saman.
Steikið á pönnu við miðlungshita, gott að nota smá smjör á pönnuna svo að deigið festist ekki við.
Bakist þar til báðar hliðar eru gullinbrúnar.
Ég mæli svo með að bera pönnukökurnar fram með ferskum berjum, sírópi og Nutella súkkulaðismjöri.
Njótið vel!
Kókos raspaðar kjúklingalundir á vöfflur

Kjúklingur á vöfflu skemmtileg hugmynd af mat sem kemur skemmtilega á óvart! Hentar bæði í kvöldmat og í brönsinn!
Smelltu hér til að nálgast hráefnið í uppskriftina.
Hráefni
- 500 gr kjúklingalundir
- 1 stk egg
- 1 dl mjólk
- 5 msk hveiti
- 160 gr kókosmjöl
- Salt og pipar
- 2 tsk Paprikuduft
- 2 tsk Kúmin duft
- 2 tsk Hvítlaukskrydd
- 4 msk kókosolía til steikingar
Aðferð
Byrjið á að hræra saman egg og mjólk í skál, hveitið fer í aðra skál og í þriðju skálina fer kókosmjölið ásamt kryddunum, hrærið kryddin vel saman við kókosmjölið.
Dýfið hverri kjúklingalund í hveiti, þaðan er henni dýft í mjólkurblönduna og að lokum í kókosmjölsblönduna, passið að hjúpa kjúklingalundina vela f kókosmjöli.
Steikið hverja lund upp úr kókosolíu á vel heitri pönnu þangað til að þær eru gullinbrúnar.
Setjið í eldfast form og inn í ofn í um 25 – 30 mínútur við 200 gráður.