„Of margir leikmenn á Íslandi á allt of háum launum“ Sindri Sverrisson skrifar 11. apríl 2022 14:30 Rúnar Kristinsson hefur stýrt KR um árabil, fyrst frá 2010-2014 og svo aftur frá árinu 2017. vísir/hulda margrét Rúnar Kristinsson, þjálfari knattspyrnuliðs KR, segist gjarnan hafa viljað fá þá Hólmar Örn Eyjólfsson og Aron Jóhannsson í sinn leikmannahóp en þeir fóru báðir til Vals. Hann telur að almennt fái of margir leikmenn á Íslandi of há laun.
Rúnar mætti í viðtal við Þungavigtina líkt og aðrir þjálfarar í Bestu deildinni, til að hita upp fyrir tímabilið sem hefst eftir slétta viku. Þættina má nálgast á tal.is/vigtin. Rúnar var meðal annars spurður sérstaklega út í það hvort að erfitt væri að keppa við Valsmenn um leikmenn, í ljósi þess að þeir virtust hafa hreppt feitustu bitana líkt og Hólmar og Aron, og hvort að honum hugnaðist að hafa launaþak: „Nei, það held ég ekki. Ég veit svo sem ekkert hvað Valur er að borga þessum strákum. Við ákváðum að reyna ekki. Ég hefði gjarnan viljað fá þá báða,“ sagði Rúnar. Klippa: Þungavigtin - Rúnar Kristins um launamál Þurfum að hugsa um rekstur félagsins líka „Við tölum bara við umboðsmenn og hina og þessa þegar við leitum að leikmönnum, og maður fréttir það mjög fljótt hvað það muni kosta að ná í þennan leikmann eða hinn. Þá segir maður stundum „heyrðu ókei, þá skulum við bara sleppa þessu“. Við þurfum aðeins að hugsa um rekstur félagsins líka,“ sagði Rúnar og bætti við: „Mér finnst persónulega stundum allt of margir leikmenn á Íslandi á allt of háum launum, miðað við framlag og vinnu. Við erum að æfa klukkan fimm á daginn, alla daga. Þessir strákar geta verið í annarri vinnu líka. Nú er ég ekki að dæma alla en félögin verða að stjórna því hvað þau eru að borga mönnum og hvað þau eru tilbúin að gera.“ Alla þætti Þungavigtarinnar má nálgast á tal.is/vigtin. Þátturinn með Rúnari kemur þar inn í heild sinni síðar í vikunni.
Besta deild karla Þungavigtin KR Kjaramál Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álftaness Körfubolti Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira