Framsókn til framtíðar í Fjarðabyggð Jón Björn Hákonarson, Þuríður Lillý Sigurðardóttir, Birgir Jónsson, Arnfríður Eide Hafþórsdóttir, Elís Pétur Elísson og Pálína Margeirsdóttir skrifa 13. maí 2022 14:31 Á laugardaginn ganga íbúar Fjarðabyggðar til kosninga og kjósa sér fulltrúa í bæjarstjórn til næstu fjögurra ára. Á undanförnum dögum og vikum höfum við, frambjóðendur Framsóknar í Fjarðabyggð, farið vítt og breitt um sveitarfélagið okkar. Við höfum átt gefandi og skemmtileg samtöl við íbúa í öllum byggðakjörnum og fengið að heyra hvað brennur á þeim. Stefnuskráin okkar, sem finna má á heimsíðunni okkar framsoknfjardabyggd.is og á samfélagsmiðlum, tekur mið af þessum samtölum og þar er sett fram skýr framtíðarsýn fyrir sveitarfélagið okkar. Stefnumál Framsóknar eru sett fram undir kjörorðinu „Framsókn til framtíðar fyrir samfélagið allt“ og endurspeglar það að framundan eru spennandi tímar í samfélaginu okkar með krefjandi og skemmtilegum verkefnum. Áherslumál Framsóknar í Fjarðabyggð eru af ýmsum toga. Málefni fjölskyldna eru sem fyrr í fyrirrúmi hjá okkur, enda viljum við að Fjarðabyggð sé góður staður til að búa á, þar sem vel er hlúð að fjölskyldufólki. En hvað viljum við gera? Framsókn til framtíðar í húsnæðismálum Framsókn í Fjarðabyggð mun leggja höfuðáherslu á greiða fyrir byggingu húsnæðis í sveitarfélaginu eftir ýmsum leiðum. Við ætlum m.a. að tryggja að áfram verði nægt framboð lóða í öllum byggðakjörnum, veita áfram afslátt af gatnagerðargjöldum og halda áfram að efla samstarf okkur við leigufélögin Bríet og Brák. Framsókn til framtíðar í menntamálum Framsókn í Fjarðabyggð vill koma að því að efla enn frekar hið góða starf sem unnið er í skólum Fjarðabyggðar. Við þurfum að vera óhrædd við að endurskoða þjónstuna okkar í skólunum, með það að markmiði að hún sé ávallt fyrsta flokks og leita sífellt leiða til efla hana. Þetta viljum við m.a. gera með því að halda áfram að efla stoðþjónustu skólanna með snemmtæka íhlutun að leiðarljósi, við viljum efla tæknikennslu í skólunum og halda áfram góðu samstarfi grunnskólanna í Fjarðabyggð við Verkmenntaskóla Austurlands á sviði iðn- og tæknigreina. Þá þarf að halda áfram að auka framboð háskólanáms og halda áfram að koma háskólaútibúinu á legg. Framsókn til framtíðar í atvinnumálum Við gerum okkur grein fyrir því að hið öfluga atvinnulíf í Fjarðabyggð er mikilvægasta stoðin undir öflugri þjónustu sveitarfélagsins. Við viljum þess vegna halda áfram að styðja vel við bakið á þeim öflugu fyrirtækjum sem hér eru og einnig að sækja fram og nýta þau fjölmörgu tækifæri til nýsköpunar sem framundan eru. Framsókn í Fjarðabyggð mun leggja höfuðáherslu á áframhaldandi þróun og uppbyggingu Græns orkugarðs og grænar fjárfestingar í atvinnuuppbyggingu í sveitarfélaginu. Við viljum að Fjarðabyggð verði leiðandi samfélag þegar kemur að framleiðslu á orku til orkuskipta. Þá þarf að leggjast í vinnu við uppbyggingu klasa og samvinnuhúsa og gera átak í ljósleiðaravæðingu þéttbýlisins til að koma til móts við þarfir starfa án staðsetningar. Framsókn til framtíðar með öflugri samvinnu Samvinna er leiðarstefið í stefnu Framsóknarflokksins. Framsóknarmenn vita að öflug samvinna á breiðum grundvelli skilar yfirleitt bestum árangri. Bæjarstjórn Fjarðabyggðar hefur síðustu fjögur ár borið gæfa til þess að ná að mynda breiða samstöðu allra flokka, bæði í minnihluta og meirihluta, í þeim málum sem til umfjöllunar hafa verið. Það er ekki sjálfgefið. Það er eðli stjórnmála að ólík sjónarmið takist á og fulltrúar hafi ólíka sýn á hlutina. Það er hinsvegar mikilvægt að stjórnvöld á hverjum tíma leiti leiða sætta þau sjónarmið, hlusta á rök og mótrök og reyna að komast að þeirri niðurstöðu sem breiðust samstaða er um. Fulltrúar Framsóknar í bæjarstjórn og nefndum Fjarðabyggðar hafa lagt sig fram við þetta, og oft á tíðum verið sú brú sem nauðsynlegt er að hafa til að sætta ólík sjónarmið. Bæjarstjórn Fjarðabyggðar þarf örugga forystu, af miðjunni. Framsókn í Fjarðabyggð býður fram slíka örugga og staðfasta forystu fyrir sveitarfélagið, þar sem samstaða og samvinna er höfð að leiðarljósi. Framboðslisti Framsóknarflokksins í Fjarðabyggð er skipaður kraftmiklu fólki á öllum aldri með fjölbreyttan bakgrunn, sem kemur úr öllum byggðakjörnum Fjarðabyggðar. Á listanum fer saman víðtæk þekking, reynsla, kraftur og vilji til að vinna að eflingu samfélagsins í Fjarðabyggð, með öruggar grunnstoðir og fjölbreytt atvinnulíf í forgrunni. Við byggjum á góðum grunni Hér á undan hefur aðeins verið stiklað á stóru í fjölbreyttum stefnumálum Framsóknar í Fjarðabyggð. Við hvetjum kjósendur til að kynna sér þau nánar á heimsíðu okkar framsoknfjardabyggd.is og ekki síður hvetjum við alla til að nýta kosningarétt sinn á laugardag. Við göngum stolt frá þessari kosningabaráttu og leggjum fyrri verk Framsóknar undir atkvæði kjósenda, ásamt þeirra framtíðarsýn sem við höfum kynnt kjósendum að undanförnu. Við höfum í kosningabaráttunni einsett okkur að vera jákvæð og hófsöm. Við höfum ekki farið fram með upphrópunum eða óraunhæfum loforðaflaumi. Við byggjum á góðum grunni – nú sækjum við fram. Setjum X við B á laugardag fyrir Framsókn til framtíðar fyrir samfélagið allt! Höfundar sitja í sex efstu sætum á framboðslista Framsóknar í Fjarðabyggð fyrir sveitarstjórnarkosningar þann 14. maí. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Fjarðabyggð Framsóknarflokkurinn Skoðun: Kosningar 2022 Sveitarstjórnarkosningar 2022 Mest lesið Þegar pólitíska tilfinningarótið tætir niður gagnrýna hugsun og vanvirðir tjáningarfrelsið Sóley Sævarsdóttir Meyer Skoðun Er bara best að þegja? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Reykjavík er höfuðborg, ekki fjölmenningarborg Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Þau sem hafna framförum Birkir Ingibjartsson Skoðun Lægri skattar eru réttlætismál fyrir ungt fólk Arnar Elvarsson Skoðun Viltu græða sólarhring í hverjum mánuði? Hjördís Lára Hlíðberg Skoðun Hvað er svona gott við að búa í Kópavogi? Sveinn Gíslason Skoðun Skrölt á gömlum Land Cruiser í þjóðaratkvæðagreiðslu Bjarki Fjalar Guðjónsson Skoðun Nýr golfvöllur í Hafnarfirði Örn Geirsson Skoðun Áhrifamat; Hvað aðild myndi þýða fyrir hinn almenna Íslending Matthías Ólafsson,Cailean Macleod Skoðun Skoðun Skoðun Bestum borgina fyrir skynsegið fólk! Olga Margrét Cilia skrifar Skoðun Pólland að verða efnahagsveldi - kallar eftir fleira fólki Jónas Guðmundsson skrifar Skoðun Lægri skattar eru réttlætismál fyrir ungt fólk Arnar Elvarsson skrifar Skoðun Ég lifi í draumi! Ingvar Örn Ákason skrifar Skoðun Neyðarkall úr Eyjum Hallgrímur Steinsson skrifar Skoðun Hvað er svona gott við að búa í Kópavogi? Sveinn Gíslason skrifar Skoðun Stytting vinnuvikunnar í Reykjavík tekin út í umferðartöfum Ari Edwald skrifar Skoðun Viltu græða sólarhring í hverjum mánuði? Hjördís Lára Hlíðberg skrifar Skoðun Nýr golfvöllur í Hafnarfirði Örn Geirsson skrifar Skoðun „Hvað plön ertu með í sumar?“ Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Ef ég C með hattinn, fer ég örugglega í stuð Sigríður Þóra Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Siglunes, já eða nei? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík er höfuðborg, ekki fjölmenningarborg Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Kostnaður, ójöfnuður og þátttaka barna í íþróttum á Akureyri Sigrún Steinarsdóttir skrifar Skoðun Heimsveldið og hjúkrunarkonan Haukur Þorgeirsson skrifar Skoðun Lægri vextir eru STÓRA MÁLIÐ Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Tækni með tilgang Einar Stefánsson skrifar Skoðun Bretland og Norðurslóðir Bryony Mathew skrifar Skoðun Þegar óttinn verður að röksemd Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Áhrifamat; Hvað aðild myndi þýða fyrir hinn almenna Íslending Matthías Ólafsson,Cailean Macleod skrifar Skoðun Hversu oft má samgöngukerfi bregðast? Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Hafnarfjörður, höfnin, samgöngur og samfélagið Guðmundur Fylkisson skrifar Skoðun Eru huldufólk enn til eða höfum við hætt að sjá það? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Öruggt húsnæði eru mannréttindi - líka í Hafnarfirði Ester Bíbí Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Samgöngusáttmáli er ekki heilagur. Ekkert er slegið í stein Símon Þorkell Símonarson Olsen skrifar Skoðun Hvernig get ég aðstoðað? Sverrir Páll Einarsson skrifar Skoðun Samfélagið í fyrsta sæti Daði Pálsson skrifar Skoðun Þegar pólitíska tilfinningarótið tætir niður gagnrýna hugsun og vanvirðir tjáningarfrelsið Sóley Sævarsdóttir Meyer skrifar Skoðun Menntamál í Hafnarfirði: Raunverulegar lausnir fyrir nemendur og starfsfólk Margrét Lilja Pálsdóttir skrifar Skoðun Skrölt á gömlum Land Cruiser í þjóðaratkvæðagreiðslu Bjarki Fjalar Guðjónsson skrifar Sjá meira
Þegar pólitíska tilfinningarótið tætir niður gagnrýna hugsun og vanvirðir tjáningarfrelsið Sóley Sævarsdóttir Meyer Skoðun
Áhrifamat; Hvað aðild myndi þýða fyrir hinn almenna Íslending Matthías Ólafsson,Cailean Macleod Skoðun
Skoðun Reykjavík er höfuðborg, ekki fjölmenningarborg Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar
Skoðun Kostnaður, ójöfnuður og þátttaka barna í íþróttum á Akureyri Sigrún Steinarsdóttir skrifar
Skoðun Áhrifamat; Hvað aðild myndi þýða fyrir hinn almenna Íslending Matthías Ólafsson,Cailean Macleod skrifar
Skoðun Samgöngusáttmáli er ekki heilagur. Ekkert er slegið í stein Símon Þorkell Símonarson Olsen skrifar
Skoðun Þegar pólitíska tilfinningarótið tætir niður gagnrýna hugsun og vanvirðir tjáningarfrelsið Sóley Sævarsdóttir Meyer skrifar
Skoðun Menntamál í Hafnarfirði: Raunverulegar lausnir fyrir nemendur og starfsfólk Margrét Lilja Pálsdóttir skrifar
Þegar pólitíska tilfinningarótið tætir niður gagnrýna hugsun og vanvirðir tjáningarfrelsið Sóley Sævarsdóttir Meyer Skoðun
Áhrifamat; Hvað aðild myndi þýða fyrir hinn almenna Íslending Matthías Ólafsson,Cailean Macleod Skoðun