Að bera sorg á torg Hrannar Már Ásgeirs Sigrúnarson skrifar 15. október 2026 08:31 Við sem náum fullorðins aldri lendum öll í því að missa einhvern sem er nákominn okkur. Við lifum foreldra okkar og samferðafólk fellur frá, allt er þetta gangur lífsins. Við samþykkjum okkar hlutskipti að vera manneskjur með okkar upphaf og endalok. Mörg okkar upplifa líka missi sem gengur þvert á þennan sáttmála sem við teljum að við eigum við náttúruna, við lifum börn okkar. Það er þá sem við upplifum ósanngirni, óöryggi, afneitun og margar aðrar erfiðar tilfinningar. Ósanngirni yfir því að einhver hafi verið tekinn í burtu án þess að fá tækifæri til þess að upplifa þá sigra og fegurð sem lífið hefur upp á að bjóða. Óöryggi og efi um að eitthvað sé öruggt eða tryggt kemur upp og í sumum tilfellum verður algjört öryggisleysi. Afneitunin við að trúa því að þetta sé raunveruleikinn. Þessar örfáu sekúndur eftir að maður vaknar og heldur að allt sé í lagi verða bestu stundir dagsins. Þessar sekúndur rétt áður en maður áttar sig á því að lífið er ekki eins og það var. Það eru tveir viðburðir núna í október sem mig langar að benda á og af hverju mér þykir þeir mikilvægir.15.október er minningarstund á vegum Gleym mér ei í félagsheimili Orkuveitunnar. Þessi dagur er tileinkaður á heimsvísu þeim sem hafa misst á meðgöngu eða misst nýbura. Eftir að dóttir mín lést þá misstum við barnsmóðir mín tvö fóstur snemma á meðgöngu. Á þeim tíma var ég enn að vinna úr dótturmissinum og gerði mér líklega ekki fyllilega grein fyrir þeim missi sem ég hafi orðið fyrir.Það var ekki fyrr en mörgum árum seinna sem ég byrjaði að tala um upplifun mína af því að missa á meðgöngu. Ég gerði lítið úr honum innra með mér til að byrja með en fann mig samt alltaf hugsa aftur til þess sem gæti hafa orðið. Þessi tvö líf sem kviknuðu en fengu aldrei að draga andann eða finna þá ást sem ég fann til þeirra.20. október er á dagskrá fyrsti viðburður vetrarins fyrir karlmenn sem hafa misst. Þetta verkefni byrjaði í vor með viðburði í Vídalínskirkju. Aðsókn á þann viðburð var mjög góð og því viljum við í Sorgarmiðstöðinni byrja veturinn á öðru fyrirlesarakvöldi. Að þessu sinni verður viðburðurinn í húsnæði Malbygg, Skútuvogi 1H klukkan 18. Þrír karlmenn munu segja frá sinni vegferð í gegnum missi og leiðinni að góðu lífi að nýju. Við getum ákveðið að tala ekki um missinn eða að tala um missinn. Í mínu tilfelli þá reyndist það miklu betur að opna á þær tilfinningar sem komu upp. Ég fann mér vetfang til að ræða þær, fá speglun á þær tilfinningar og heyra sögur annara. Ég hvet alla sem hafa misst að leita sér aðstoðar því að lífið getur orðið aftur yndislegt og fallegt þrátt fyrir erfiðan missi.Það er er góð byrjun að koma, hlusta og heyra aðra segja sína sögu. Höfundur er hópstjóri og jafningi hjá Sorgarmiðstöðinni. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sorg Mest lesið Ég er ekki tilbúin að stökkva Agla Þyri Kristjánsdóttir Skoðun Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir Skoðun Líf með tilgang og gleði, þrátt fyrir heilabilun Elísa Arnars Ólafsdóttir Skoðun Lífið í Grindavík í dag – þakklæti, óvissa og trú á framtíðina Dagmar Valsdóttir Skoðun Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange Skoðun Norrænt sambandsríki – næsta skref! Hrannar Björn Arnarsson Skoðun Öryggi í skólum krefst aðgerða og eftirfylgni Kolbrún Magnúsdóttir Skoðun Spilin sem enginn vill fá Sigríður Eva Þorsteinsdóttir Skoðun Hver á að gæta varðanna í Róm? Páll Ásgrímsson Skoðun Flokkur fólksins klippir á bremsur unga fólksins Óðinn Freyr Baldursson Skoðun Skoðun Skoðun Að bera sorg á torg Hrannar Már Ásgeirs Sigrúnarson skrifar Skoðun Hver á að gæta varðanna í Róm? Páll Ásgrímsson skrifar Skoðun Öryggi í skólum krefst aðgerða og eftirfylgni Kolbrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Betri (umferðar) borg fyrir börn Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Líf með tilgang og gleði, þrátt fyrir heilabilun Elísa Arnars Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvað viðheldur ójöfnuði milli kynslóða á Íslandi? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Tökum stjórn á framtíðinni Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir skrifar Skoðun Er mikið umframboð á fasteignamarkaði? Ólafur Margeirsson skrifar Skoðun Spilin sem enginn vill fá Sigríður Eva Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Ég er ekki tilbúin að stökkva Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Viðreisn vill raunverulegar forvarnir gegn nikótínneyslu ungmenna Sandra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Vöruverðið á vegum úti Benedikt S. Benediktsson skrifar Skoðun Lífið í Grindavík í dag – þakklæti, óvissa og trú á framtíðina Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Hugsum fram í tímann Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Nýsköpun er besta byggðastefnan Lilja Björg Ágústsdóttir skrifar Skoðun Til hamingju... með hvað? Einar Jóhannes Guðnason skrifar Skoðun Tíminn sem tapast þegar næringin fylgir ekki æfingaálaginu Lilja Guðmundsdóttir ,Arnar Sölvi Arnmundsson skrifar Skoðun Ekkert leyniletur heldur íslenskt ritmál – Punktaletur á að vera sjálfsagður hlutur Hjalti Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað kemur ESB málinu við? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange skrifar Skoðun Flokkur fólksins klippir á bremsur unga fólksins Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun Tilvistarkreppa borðstofunnar Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Af hverju ekki hún? Thelma Kristín Kvaran skrifar Skoðun Norrænt sambandsríki – næsta skref! Hrannar Björn Arnarsson skrifar Skoðun Hvers vegna eru niðurstöður PISA leyndarmál? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Ekki er allt gull sem glóir Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Verðmætin verða ekki til af sjálfu sér Hafdís Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvað varð um tillögurnar? Ragnhildur Jónsdóttir skrifar Skoðun Spyrjið okkur hvað við sjáum á TikTok Lena Amirsdóttir Mulamuhic skrifar Sjá meira
Við sem náum fullorðins aldri lendum öll í því að missa einhvern sem er nákominn okkur. Við lifum foreldra okkar og samferðafólk fellur frá, allt er þetta gangur lífsins. Við samþykkjum okkar hlutskipti að vera manneskjur með okkar upphaf og endalok. Mörg okkar upplifa líka missi sem gengur þvert á þennan sáttmála sem við teljum að við eigum við náttúruna, við lifum börn okkar. Það er þá sem við upplifum ósanngirni, óöryggi, afneitun og margar aðrar erfiðar tilfinningar. Ósanngirni yfir því að einhver hafi verið tekinn í burtu án þess að fá tækifæri til þess að upplifa þá sigra og fegurð sem lífið hefur upp á að bjóða. Óöryggi og efi um að eitthvað sé öruggt eða tryggt kemur upp og í sumum tilfellum verður algjört öryggisleysi. Afneitunin við að trúa því að þetta sé raunveruleikinn. Þessar örfáu sekúndur eftir að maður vaknar og heldur að allt sé í lagi verða bestu stundir dagsins. Þessar sekúndur rétt áður en maður áttar sig á því að lífið er ekki eins og það var. Það eru tveir viðburðir núna í október sem mig langar að benda á og af hverju mér þykir þeir mikilvægir.15.október er minningarstund á vegum Gleym mér ei í félagsheimili Orkuveitunnar. Þessi dagur er tileinkaður á heimsvísu þeim sem hafa misst á meðgöngu eða misst nýbura. Eftir að dóttir mín lést þá misstum við barnsmóðir mín tvö fóstur snemma á meðgöngu. Á þeim tíma var ég enn að vinna úr dótturmissinum og gerði mér líklega ekki fyllilega grein fyrir þeim missi sem ég hafi orðið fyrir.Það var ekki fyrr en mörgum árum seinna sem ég byrjaði að tala um upplifun mína af því að missa á meðgöngu. Ég gerði lítið úr honum innra með mér til að byrja með en fann mig samt alltaf hugsa aftur til þess sem gæti hafa orðið. Þessi tvö líf sem kviknuðu en fengu aldrei að draga andann eða finna þá ást sem ég fann til þeirra.20. október er á dagskrá fyrsti viðburður vetrarins fyrir karlmenn sem hafa misst. Þetta verkefni byrjaði í vor með viðburði í Vídalínskirkju. Aðsókn á þann viðburð var mjög góð og því viljum við í Sorgarmiðstöðinni byrja veturinn á öðru fyrirlesarakvöldi. Að þessu sinni verður viðburðurinn í húsnæði Malbygg, Skútuvogi 1H klukkan 18. Þrír karlmenn munu segja frá sinni vegferð í gegnum missi og leiðinni að góðu lífi að nýju. Við getum ákveðið að tala ekki um missinn eða að tala um missinn. Í mínu tilfelli þá reyndist það miklu betur að opna á þær tilfinningar sem komu upp. Ég fann mér vetfang til að ræða þær, fá speglun á þær tilfinningar og heyra sögur annara. Ég hvet alla sem hafa misst að leita sér aðstoðar því að lífið getur orðið aftur yndislegt og fallegt þrátt fyrir erfiðan missi.Það er er góð byrjun að koma, hlusta og heyra aðra segja sína sögu. Höfundur er hópstjóri og jafningi hjá Sorgarmiðstöðinni.
Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir Skoðun
Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange Skoðun
Skoðun Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir skrifar
Skoðun Viðreisn vill raunverulegar forvarnir gegn nikótínneyslu ungmenna Sandra Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Tíminn sem tapast þegar næringin fylgir ekki æfingaálaginu Lilja Guðmundsdóttir ,Arnar Sölvi Arnmundsson skrifar
Skoðun Ekkert leyniletur heldur íslenskt ritmál – Punktaletur á að vera sjálfsagður hlutur Hjalti Sigurðsson skrifar
Skoðun Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange skrifar
Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir Skoðun
Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange Skoðun