Tónlist

Taylor Swift fékk doktorsgráðu frá New York University

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Taylor Swift á útskrift New York University.
Taylor Swift á útskrift New York University. Getty/Dia Dipasupil

Söngkonan Taylor Swift hélt ræðu í gær fyrir útskriftarnema New York University. Í leiðinni tók hún við sérstakri heiðursdoktorsgráðu í listum frá skólanum.

Aretha Franklin er á meðal þeirra sem hlotið hafa þessa heiðursgráðu frá skólanum. 

Swift hefur átt ótrúlegan feril í tónlist þrátt fyrir að vera aðeins 32 ára gömul og hefur meðal annars unnið 11 Grammy verðlaun. Hún er ekki aðeins tónlistarkona heldur líka leikkona, framleiðandi og leikstjóri og hefur barist hart fyrir réttindum listamanna og réttindum stúlkna og kvenna um allan heim.  Hefur hún einnig gefið mikið til góðgerðarmála. 

Swift hefur selt yfir hundrað milljón plötur á ferlinum. Þegar talað var um velgengni söngkonunnar, allar metsöluplöturnar og hundruð milljóna aðdáenda hennar um allan heim, mátti sjá að söngkonan var með tárin í augunum.

„Taylor Swift þú ert fyrirmynd um allan heim.“

Aðdáendur söngkonunnar voru að springa úr stolti yfir þessu öllu saman og ætla margir að kalla hana eingöngu Dr. Taylor Swift hér eftir. 

Athöfnina má sjá í spilaranum hér fyrir neðan. Swift fær doktorsgráðuna afhenta á 2:47:00 í myndbandinu. Ræða söngkonunnar hefst á mínútu 2:51:23.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.