Lífið

Heimili Travis og Kourtney: Upptökuver, kvikmyndasalur, Dior BMX hjól og fallegir bílar

Elísabet Hanna skrifar
Travis hefur átt húsið í sextán ár en gerði það nýlega upp.
Travis hefur átt húsið í sextán ár en gerði það nýlega upp. Skjáskot/Youtube/AD

Travis Barker tók á móti Architectural Digest á heimi sínu í Calabasas, Kaliforníu sem hann deilir nú með Kourtney Kardashian. Heimilið er látlaust, róandi og í nútímalegum stíl. Hann segir heimilið vera griðarstað og er ekki hrifinn að því að fá of marga inn á það. 

Á heimilinu má meðal annars finna upptökuver, kvikmyndasal, Dior BMX hjól, fallega bíla og glæsilegan garð með sundlaug. Heimsóknina má sjá í heild sinni hér að neðan.

Matcha og Kris Jenner

Hann segir tengdamömmu sína Kris Jenner hafa bent honum á hönnuðinn Waldo Fernandez sem gerði upp heimilið sem þurfti að taka í gegn eftir að hafa verið eins síðustu fimmtán árin. Þar sem hann labbar í gegnum heimilið sitt má sjá Kourtney í eldhúsinu að sötra á matcha sem hún segir hann gera manna best og hann tekur undir það:

„Ég geri í alvörunni besta matchað, betra en nokkur matcha staður í Los Angeles.“

Breyttir tímar

„Ég hef átt heimili með fullt af áberandi bílum, veggmyndum og hjólum hangandi úr loftinu en með mín þrjú börn og börnin hennar Kourtney, fannst mér þessi staður vera réttur fyrir þetta augnablik í lífi mínu,“ segir hann. Hann rifjar einnig upp gamla tíma þegar hann hélt reglulega partý í garðinum og eitt sinn í anda kvikmyndarinnar Project X en bætir svo við:

„Ég er hrifnari að þessu lífi, mér líkar það betur.“

Tengdar fréttir

Gwyneth Paltrow sýnir heimilið sem inniheldur spa

Gwyneth Paltrow opnaði dyrnar að heimili sínu í Montecito fyrir Architectural Digest. Húsið byggðu þau fjölskyldan frá grunni og inniheldur það mikið af fallegum, einstökum munum og virðist sækja innblástur til Evrópu. Eins og sannri Hollywood stjörnu sæmir inniheldur húsið spa með handgerðum flísum sem hún segist nota daglega.

Keypti 400 bækur á heimilið bara fyrir innlitið

Disney stjarnan Ashley Tisadale opnaði hurðina að heimili sínu í Los Angeles fyrir Architectural Digest. Heimilið hannaði hún sjálf og er stolf af útkomunni en viðurkenndi í viðtalinu að hafa sent eiginmanninn að kaupa 400 bækur fyrir viðtalið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.