Tímabilinu lokið hjá Valencia sem var heillum horfið án Martins Valur Páll Eiríksson skrifar 30. maí 2022 21:01 Spilamennsku Valencia fór hrakandi eftir að Martin fór meiddur af velli. Mike Kireev/NurPhoto via Getty Images Valencia þurfti að þola 59-76 tap fyrir Baskonia í oddaleik liðanna í 8-liða úrslitum spænsku deildarinnar í körfubolta í kvöld. Meiðsli Martins Hermannssonar settu svartan blett á leik kvöldsins.
Allt var undir í kvöld þar sem ljóst var fyrir leik að Real Madrid biði sigurliðsins í undanúrslitum en tapliðið færi í sumarfrí. Valencia byrjaði af miklum krafti og leiddi 20-9 eftir fyrsta leikhlutann. Baskonia vann sig inn í leikinn þegar leið á annan leikhlutann og var staðan 37-31 þegar Martin Hermannsson virtist meiðast illa og var borinn af velli. Hann tók ekki frekari þátt í leiknum. Baskonia skoraði síðustu þrjú stig hálfleiksins og var staðan 37-34 fyrir heimamenn í leikhléi. Eitthvað virtust meiðsli Martins, eða fjarvera hans, hafa áhrif á Valencia-liðið, þar sem lið Baskonia hélt áfram þar sem frá var horfið í upphafi þriðja leikhluta og komst snemma yfir. Baskonia leiddi lengst af í þriðja leikhlutanum en Valencia beit frá sér undir lok hans og leiddi 54-53 fyrir fjórða og síðasta leikhlutann. Aftur náði Baskonia þó fljótt yfirhöndinni og bætti hægt og bítandi við forskot sitt gegn heillum horfnu liði Valencia. Valencia skoraði aðeins fimm stig í fjórða leikhluta gegn 23 stigum Baskonia sem vann leikinn 76-59 og er því komið í undanúrslit gegn Real Madrid. Tímabili Valencia er aftur á móti lokið. Á morgun kemur í ljós hvort Badalona eða Tenerife fylgi Baskonia í undanúrslitin. Leikur liðanna hefst klukkan 18:50 á Stöð 2 Sport 2. Sigurliðið mun mæta Barcelona.
Spænski körfuboltinn Mest lesið „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót Fótbolti Ronaldo fór illa með færin í kvöld Fótbolti „Slakiði á“ Fótbolti Edwards rekinn frá Úlfunum Fótbolti Fleiri fréttir Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Sjá meira