Skoðun

Hentifræði eru tímasóun

Þórarinn Hjartarson skrifar

Tími og orka stórs hluta ungs fólks í vestrænum samfélögum er eytt í vitleysu innan veggja háskólasamfélaga. Á hverjum degi mæta tugir þúsunda ungmenna til kennslu stýrt af hugmyndafræðing með jesúkomplexa sem telur sig vera andsvar óréttlætis í heiminum og sannfærir nemendur um að allir sem efist um ágæti hugsjóna hans sé ofbeldisfólk. Verðleikar þátttakenda í þeirri kennslustofu eru metnir eftir kyni, kynþætti, kynhneigð, líkamsbyggingu ásamt öðrum þáttum sem veita engar upplýsingar um ágæti hugmynda þeirra.

Með vísan til samhengislausra hugleiðinga um söguna og samfélagið er þetta unga fólk sannfært um að það eitt að lifa í sínu samfélagi sé þátttaka í að viðhalda ofríki rasísks heteranormatívs feðraveldis sem helst megi líkja við dystópíska skáldsögu. Allt sem þessu unga fólki mislíkar við eigin tilvist er öðrum að kenna og verður það ástand viðvarandi þangað til aðrir fara að haga sér eftir þeirra formmerkjum. Þetta eru fjarri því að vera einföld fræði. Markmið baráttunnar sveiflast eftir vindum og hentisemi, það sem var rétt í gær er rangt á morgun og allar framfarir eru þversagnakenndar, álitnar merki um að það sé enn meira verk að vinna heldur en þau töldu í fyrstu.

Tími fólks er verðmætur. Sérstaklega ungs fólks. Ástandið hérlendis er betra en vestanhafs. Samhliða tímaeyðslu safna ungmenni þar himinháum skuldum sem nær ómögulegt er fyrir þau að endurgreiða vegna lítillar eftirspurnar eftir sérhæfingu þeirra á vinnumarkaði. En það er mikilvægt að læra af mistökum.

Blessunarlega er framboð ofangreindra hentifræða minna í íslenskum háskólum, nám er niðurgreitt og nýtist þeim sem greiða það í flestum tilfellum síðar. Þó eru blikur á lofti. Heilbrigðis-, mennta- og leikskólasvið sárvantar sérhæft fólk ásamt því að mikil kreppa hefur skapast á húsnæðismarkaði sem krefst iðnaðarmanna. Því vill undirritaður biðla til ungs fólks um að íhuga val sitt á námi vandlega. Vegurinn að hamingjunni felst ólíklega í atvinnuaktívisma þar sem starfskilyrði krefjast þess helst að móðgast fyrir hönd annarra og að halda samborgurum sínum í siðferðislegri gíslingu.

Höfundur er þáttastjórnandi hlaðvarpsins Ein Pæling.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×