Umhverfisráðherrann skotinn til bana á skrifstofunni af æskufélaga Atli Ísleifsson skrifar 7. júní 2022 08:01 Orlando Jorge Mera tók við embætti umhverfisráðherra Dóminíska lýðveldisins fyrir um tveimur árum. AP Ráðherra umhverfis- og auðlindamála í Dóminíska lýðveldinu var skotinn til bana á skrifstofunni sinni af nánum vini sínum í gær.
Ráðherrann, hinn 55 ára Orlando Jorge Mera, sat á fundi þegar hann var skotinn til bana og er haft eftir talsmanni lögreglu að skotið hafi verið úr byssu sex sinnum. Frá aðgerðum lögreglu fyrir utan umhverfisráðuneytið í Santo Domingo í Dóminíska lýðveldinu í gær.EPA Í frétt BBC segir að talsmaður forsetaskrifstofu landsins segi að árásarmaðurinn hafi verið maður að nafni Miguel Cruz sem sé æskuvinur ráðherrans. Cruz er nú í haldi lögreglu en enn hefur ekkert verið gefið upp um ástæður árásarinnar. Í yfirlýsingu frá fjölskyldu Jorge Mera segir að hún fyrirgefi manninum sem hafi staðið fyrir árásinni. Það hafi verið ein helsta arfleifð Jorge Mera að vera ekki langrækinn. Jorge Mera hafði gegnt embætti í ríkisstjórn Luis Abinader frá því að hann tók við völdum í júlí 2020. Jorge Mera var sonur forsetans fyrrverandi Salvador Jorge-Blanco, og einn af stofnendum stjórnarflokksins Nýja byltingarflokksins (PRM). Jorge Mera lætur eftir sig eiginkonu sem gegnir stöðu sendiherra Dóminíska lýðveldisins gagnvart Brasilíu og tvo syni, en annar þeirra er þingmaður PRM.
Dóminíska lýðveldið Andlát Mest lesið Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Erlent Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Haraldur V Noregskonungur er látinn Erlent Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent „Verkinu er haldið í gíslingu“ Innlent Inga segir já Innlent „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Innlent Fleiri fréttir Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Yfirmaður CIA í Moskvu Hvirfilbylur olli usla í sunnanverðu Frakklandi Sjá meira