Náðuð 27 árum eftir að hún myrti manninn sem seldi hana í vændi Magnús Jochum Pálsson skrifar 4. júlí 2022 16:10 Sara Kruzan var náðuð síðastliðinn föstudag, 27 árum eftir að hún var dæmd fyrir morðið á George Howard, sem misnotaði hana og seldi í vændi. Samsett Sara Kruzan var náðuð síðastliðinn föstudag, 27 árum eftir að hún var dæmd fyrir morðið á Georg Howard sem misnotaði hana og seldi í vændi. Kruzan var sextán ára þegar hún drap Howard og aðeins sautján ára þegar hún hlaut lífstíðardóm fyrir morðið.
Gavin Newsom, ríkisstjóri Kaliforníu, náðaði Söru Kruzan á föstudag en hún var dæmd í lífstíðarfangelsi fyrir morðið á George Howard árið 1995 þegar hún var sautján ára. Á sínum tíma var Kruzan sótt til saka sem fullorðinn einstaklingur þrátt fyrir að hafa verið einungis sextán ára gömul þegar hún myrti Howard á mótelherbergi. Howard kynntist Kruzan þegar hún var ellefu ára og tók hann þá að sér föðurhlutverk í lífi hennar en frá því hún var þrettán ára seldi hann hana í vændi. Berst fyrir breyttu réttarkerfi Árið 2011 var fangelsisdómur Kruzan styttur niður í 25 ár með möguleika á reynslulausn af Arnold Schwarzenegger, þáverandi ríkisstjóra Kaliforníu. Þegar hún var loks látin laus úr fangelsi árið 2013 hafði hún setið inni í fangelsi í átján ár. Frá því hún losnaði úr fangelsi hefur hún verið mikil baráttukona fyrir breytingum á því hvernig bandaríska réttarkerfið tekur á málum barna. Í samtali við Los Angeles Times á sunnudag sagði Kruzan að hún hafi fundið fyrir létti þegar hún heyrði af ákvörðun ríkisstjórans sem hefði „losað þessar ósýnilegu keðjur sem ég gerði mér ekki grein fyrir að væru enn kræktar í [mig].“
Bandaríkin Réttindi barna Mest lesið Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag Innlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Fleiri fréttir Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Sjá meira