Íslensku strákarnir ekki í vandræðum með Svartfellinga Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 12. júlí 2022 12:30 U20 ára lið Íslands vann öruggan sigur gegn Svartfellingum í dag. HSÍ Íslenska landsliðið í handbolta skipað leikmönnum 20 ára og yngri vann öruggan 13 marka sigur gegn Svartfellingum, 41-28, í fyrri leik liðsins í neðri milliriðli EM sem haldið er í Portúgal.
Leikurinn fór rólega af stað og eftir rétt tæpar átta mínútur var staðan 2-2. Eftir það tók sóknarleikur beggja liða við sér og þegar fyrri hálfleikur var hálfnaður var íslenska liðið komið með tveggja marka forskot, 9-7. Íslensku strákarnir tóku þá öll völd á vellinum og góð vörn og markvarsla skilaði liðinu mest sex marka forskoti í stöðunni 16-10 þegar um fimm mínútur voru eftir af fyrri hálfleik. Svartfellingar náðu hins vegar að stoppa í götin fyrir hálfleik og íslenska liðið leiddi með fimm mörkum þegar gengið var til búningsherbergja, staðan 18-13. Íslenska liðið hafði svo öll völd á vellinum í síðari hálfleik. Strákarnir náðu fljótt átta marka forskoti og svo tíu marka forskoti í stöðunni 32-22 þegar tæplega stundarfjórðungur var til leiksloka. Sigur íslenska liðsins var því aldrei í hættu í síðari hálfleik og Ísland vann að lokum afar öruggan 13 marka sigur, 41-28. Andri Már Rúnarsson var markahæstur í liði Íslands með níu mörk, en þeir Benedikt Gunnar Óskarsson, Simon Mchael Guðjónsson og Gauti Gunnarsson skoruðu fimm mörk hver. Í markinu átti Adam Thorstensen flottan leik og varði 16 skot. Íslenska liðið er nú með tvö stig í neðri milliriðli tvö þegar liðið á einn leik eftir. Hvorki Ísland né Svartfjallaland tók stig með sér í milliriðilinn, en sigurinn í dag þýðir að Ísland á enn fína möguleika á því að komast upp úr riðlinum. Efstu tvö liðin úr riðlinum leika um 9.-12. sæti á mótinu, en efstu 11 sætin gefa þátttökurétt á HM á næsta ári.
Handbolti Landslið karla í handbolta Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti FH - Þróttur | Mikilvægt fyrir titilbaráttuna að fá sigur Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira