Ítalir tóku toppsætið og Ísland mætir Slóvenum Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 13. júlí 2022 15:17 Íslensku strákarnir tryggðu sér annað sæti milliriðilsins í dag með öruggum sigri gegn Króötum. HSÍ Ítalir tryggðu sér toppsæti neðri milliriðils tvö, riðli okkar Íslendinga, með fimm marka sigri gegn Svartfellingum í dag á EM U20 ára landsliða í handbolta í dag, 31-26. Íslenska liðið hafnar því í öðru sæti riðilsins og mætir Slóvenum í leik sem ákvarðar hvort liðið leikur um 9. eða 11. sæti mótsins.
Íslenska liðið tryggði sér í það minnsta annað sæti riðilsins með afar öruggum 13 marka sigri gegn Króötum, 33-20. Ítalska liðið þurfti því í það minnsta jafntefli gegn Svartfellingum í dag til að tryggja sér sigur í riðlinum. Svartfellingar byrjuðu leikinn betur og náðu fljótt fimm marka forskoti. Ítalir vöknuðu þá til lífsins og snéru taflinu sér í vil áður en flautað var til hálfleiks, en ítalska liðið fór með tveggja marka forskot inn í hálfleikinn, 14-12. Mikið jafnræði var með liðunum lengst af í síðari hálfleik, en ítalska liðið var þó alltaf skrefinu framar. Ítalir stungu svo af undir lok leiksins og unnu að lokum góðan fimm marka sigur, 31-26. Ítalir munu því leika gegn Færeyingum sem höfnuðu í öðru sæti í neðri millirili eitt, á meðan Íslendingar mæta Slóvenum sem unnu þann riðil. Sigurliðin úr þessum leikjum munu svo leika um 9. sæti mótsins, en tapliðin um 11. sæti. Efstu 11 sæti mótsins gefa þátttökurétt á HM. Leikur Íslands og Slóveníu fer fram á föstudaginn.
Handbolti Landslið karla í handbolta Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu Íslenski boltinn Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira