Lífið

Náðu fram heitasta na­glat­rendinu með vörum sem þú átt nú þegar til í snyrti­buddunni

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Ekkert lát virðist vera á vinsældum Hailey Bieber naglalúkksins. Nú geta lesendur endurskapað þessar neglur á auðveldan og ódýran hátt.
Ekkert lát virðist vera á vinsældum Hailey Bieber naglalúkksins. Nú geta lesendur endurskapað þessar neglur á auðveldan og ódýran hátt. Getty/Sean Zanni - Instagram/Zola Ganzorigt

Þeir sem fylgjast vel með í heimi tísku og förðunar hafa varla látið hinar vinsælu Hailey Bieber-neglur framhjá sér fara. Ekkert lát virðist vera á vinsældum þessa trends og því vel við hæfi að fara yfir fara yfir það hvernig hægt er að ná fram þessu lúkki heima, með vörum sem ættu að vera til í flestum snyrtibuddum.

Fyrirsætan Hailey Bieber er ein helsta tískufyrirmynd ungra kvenna í dag. Eitt af hennar helstu sérkennum er mikill ljómi (e. glazed donut) þegar kemur að húðumhirðu og förðun og virðast neglurnar ekki vera nein undantekning.

Sjá: Endurskapar Bieber nafnið: Ein stærsta tískufyrirmynd sinnar kynslóðar

Bieber sást fyrst skarta ljómandi nöglum eða svokölluðum „glazed donut“ nöglum í byrjun sumars. Um er að ræða ljósar neglur með króm áferð, sem líkist gljáa á sykurhúðuðum kleinuhring.

Hér má sjá hinar eftirsóttu Hailey Bieber neglur.Instagram/Zola Ganzorigt

Vinsælustu neglur sumarsins

Það er naglafræðingurinn Zola Ganzorig sem sér um neglur Bieber. Til þess að ná fram lúkkinu notar hún ljóst gel og krómduft.

Neglurnar hafa verið þær allra vinsælustu hjá ungum konum í sumar. Á undanförnum vikum hefur Bieber svo sést skarta nöglunum í enn fleiri litum sem eiga eftir að verða vinsælir í haust.

@haileybieber I know we re tired of my constant color switch up but the chocolate glazed donut nails are really hitting for me for fall @zolaganzorigt original sound - jex

Endurskapaðu lúkkið með naglalakki og ljómapúðri

Það er því vel við hæfi að fara yfir það hvernig hver sem er getur náð fram þessu lúkki á ódýran og einfaldan hátt, með förðunarvörum sem flestir ættu að eiga til.

Í myndbandinu hér að neðan er sýnt hvernig nota má ljóst naglalakk og ljómapúður (e.highlighter) til þess að ná fram þessu eftirsóknarverða lúkki.

Einnig hægt að nota augnskugga

Tvær umferðir af naglalakki eru settar á neglurnar og því leyft að þorna. Því næst er ljómapúðri nuddað á neglurnar með fingrinum. Það er þó einnig hægt að nota svamp eða Beauty Blender í verkið. Því næst skal setja glært naglalakk yfir púðrið til þess að fá ennþá meiri glans og til þess að allt haldist á sínum stað.

Hér að neðan má svo sjá annað myndband þar sem notaður er augnskuggi í stað ljómapúðurs.

Leiktu þér með litina

Þrátt fyrir að upprunalega lúkkið hafi verið í ljósum lit, hefur Bieber verið óhrædd við að prófa sig áfram með fleiri litum. Í sumar skartaði hún gulum og pastel fjólubláum nöglum og nú í haust hefur hún sést skarta brúnum og gráum nöglum. Ljóminn er þó alltaf á sínum stað.

Tískufyrirmyndin Hailey Bieber er óhrædd við að prófa nýja liti. Í sumar skartaði hún meðal annars þessum gulum og pastel fjólubláum nöglum.Instagram/Zola Ganzorigt
Nú þegar haustið er komið getur verið gaman að prófa sig áfram með haustlegum litum.Instagram/Hailey Bieber
Til þess að ná fram þessu lúkki er hægt að nota brúnt naglalakk og setja ljómapúður eða augnskugga í náttúrulegum lit yfir.Instagram/Hailey Bieber

Tengdar fréttir

Endurskapar Bieber nafnið: Ein stærsta tískufyrirmynd sinnar kynslóðar

Það er óhætt að segja að hin undurfagra Hailey Bieber sé ein helsta tískufyrirmynd ungra kvenna í dag. Stíll hennar er einstaklega töff en á sama tíma afslappaður og áreynslulaus, sem gerir það að verkum að auðvelt er fyrir hvern sem er að endurskapa hann.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.