Lægðin heldur að nálgast landið aftur en farin að grynnast Atli Ísleifsson skrifar 26. september 2022 07:10 Hiti á landinu verður tvö til tíu stig og mildast sunnan heiða. Vísir/Atli Lægðin sem olli aftakaveðri á austanverðu landinu í gær er nú stödd 350 kílómetra norðaustur af Langanesi og er á leið suðsuðaustur. Lægðin er því heldur að nálgast landið, en á móti kemur að hún er farin að grynnast og missa kraft sinn.
Á vesturhelmingi landsins má reikna með norðlægri eða breytilegri átt, þremur til tíu metrum á sekúndu, en norðvestan, tuttugu til 28 metrum á sekúndu austanlands en að það dragi úr vindi seinnipartinn. Hiti á landinu verður tvö til tíu stig og mildast sunnan heiða. Frá þessu segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. Þar segir að niðurstaðan af þessu sé að versta veðrið austanlands hafi verið afstaðið í gærkvöldi, en enn vegi búast við norðvestan stormi eða roki á Austfjörðum fram eftir degi. „Þar lægir síðan svo um munar í kvöld og nótt, en þá hefur áðurnefnd lægð fjarlægst landið, ásamt því að hún heldur áfram að grynnast. Austanlands verður skýjað að mestu í dag og dálítil rigning eða slydda eftir hádegi. Fyrir vestan land er staddur hæðarhryggur og stjórnar hann veðrinu á vesturhelmingi landsins. Þar er því hæg norðlæg eða breytileg átt og léttskýjað. Á morgun lægir enn frekar við austurströndina og þá verður komið hið rólegasta veður á landinu öllu. Ekki er búist við úrkomu að neinu ráði. Það verður væntanlega skýjað um landið norðaustanvert, en í öðrum landshlutum ætti eitthvað að sjást til sólar. Hitinn í dag og á morgun er svipaður: svalast um 2 gráður norðaustanlands, en allt að 10 stig yfir hádaginn sunnan heiða.“ Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Breytileg átt 3-8 m/s, en norðan strekkingur við austurströndina fyrir hádegi. Víða bjartviðri, en skýjað um landið norðaustanvert. Hiti 3 til 10 stig, mildast sunnanlands. Á miðvikudag: Hæg suðlæg eða breytileg átt. Lítilsháttar væta á Suður- og Vesturlandi, en þurrt og bjart norðan- og austanlands. Hiti 5 til 10 stig. Á fimmtudag: Suðaustan 8-15 m/s og rigning með köflum, en þurrt á Norður- og Austurlandi. Hiti 6 til 12 stig. Á föstudag: Ákveðin austanátt og dálítil rigning, en yfirleitt þurrt á Norður- og Vesturlandi. Hiti breytist lítið. Á laugardag: Austan- og norðaustanátt og rigning af og til, en bjartviðri á Suður- og Vesturlandi. Hiti 5 til 12 stig, hlýjast sunnan heiða. Á sunnudag: Austlæg átt. Skýjað austanlands, en léttskýjað vestantil. Hiti breytist lítið.
Veður Óveður 25. september 2022 Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Fleiri fréttir Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Sjá meira