Bayern komst aftur á sigurbraut en vandræði Leverkusen halda áfram Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 30. september 2022 20:23 Sadio Mane skoraði þriðja mark heimamanna. Alexander Hassenstein/Getty Images Eftir fjóra deildarleiki í röð án sigurs komust þýsku meistararnir í Bayern München loksins aftur á sigurbraut er liðið vann öruggan 4-0 sigur gegn Bayer Leverkusen í kvöld. Vandræði gestanna halda þó enn áfram og liðið situr í fallsæti eftir fyrstu átta umferðirnar.
Heimamenn í Bayern voru ekkert að slóra og Leroy Sane kom liðinu yfir strax á þriðju mínútu leiksins eftir stoðsendingu frá Jamal Musiala. Musiala var svo sjálfur á ferðinni þegar hann tvöfaldaði forystu heimamanna eftir 17 mínútna leik og hann lagði svo einnig upp þriðja mark liðsins tuttugu mínútum síðar fyrir Sadio Mane. Staðan því 3-0 í hálfleik og útlitið gott fyrir þýsku meistarana. Sadio Mane hélt svo að hann hefði skorað annað mark sitt og fjórða mark heimamanna snemma í síðari hálfleik, en markið dæmt af eftir skoðun myndbandsdómara og staðan því enn 3-0. Það var svo Thomas Müller sem gerði endanlega út um leikinn þegar hann skoraði fyrir heimamenn rúmum fimm mínútum fyrir leikslok og niðurstaðan því 4-0 sigur Bayern. Bayern München situr nú í öðru sæti þýsku úrvalsdeildarinnar með 15 stig eftir átta leiki, tveimur stigum á eftir toppliði Union Berlin sem á þó leik til góða. Bayer Leverkusen situr hins vegar í 16. sæti deildarinnar með aðeins fimm stig og liðið hefur einungis unnið einn leik á tímabilinu.
Þýski boltinn Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fleiri fréttir Thelma með stoðsendingu og er Svíþjóðarmeistari Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Ronaldo var skilinn eftir heima Fer frá Stjörnunni í FH Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Fimmta árið í röð eru Noregsmeistararnir með eina íslenska í liðinu Leikmaður Freys varð fyrir kynþáttaníði frá mótherja Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Þjálfari Hákonar grét eftir leik Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Messi tryggði Inter Miami mikilvægan sigur Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Sjá meira