„Tilfinningin var mögnuð og eitthvað sem ég hef ekki upplifað áður. Bæði stemningin að vera baksviðs og á meðan sýningunni stóð,“ segir Lína Birgitta um þetta ævintýri. Eins og kom fram hér á Lífinu um helgina kom tækifærið óvænt upp fyrir nokkrum mánuðum og ákvað Lína Birgitta að stökkva á það.
„Sýningin gekk eins og í sögu þar sem að skipulagið í kringum sýninguna var uppá 10,“ segir Lína Birgitta í samtali við Lífið.

Eftir að fyrirsætur höfðu sýnt nýjustu hönnun Línu Birgittu fór hún sjálf fram sýningarpallinn líkt og algengt er að hönnuðir geri eftir sýningar.
„Tilfinningin var ótrúleg. Að ganga fram og sjá alla klappa fyllti mann af þakklæti. Ég á frekar erfitt með að lýsa hvernig mér leið en þegar ég kom aftur baksviðs fékk ég þvílíkan kökk í hálsin og langað að gráta úr gleði og þakklæti og fór beint að knúsa módelin mín.“

Lína Birgitta var ótrúlega ánægð með viðbrögðin sem línan fékk frá áhorfendum.
„Ég kunni svo mikið að meta skilaboð sem ég fékk send um leið og sýningin var búin, frá henni Sólrúnu vinkonu en hún sendi:
„Ég skelf, ertu að djóka! Ég er svo stolt af þér, þetta var klikkað!”
Viðbrögðin voru mjög góð og ég er spennt fyrir næstu skrefum.“

Lína Birgitta segir sem minnst um það hvort þessi sýning opni fleiri dyr innan tískunnar.
„Ég held að ég vilji segja sem minnst þar sem ég vil sýna hlutina í verki. Það sem er framundan er meðal annars nýjungar, pop-up markaðir, ný módel fyrir vörumerkið þar sem ég vil hafa alla húðliti og fleiri stærðir og svo mjög spennandi verkefni sem gerist 2023.“

Hún útilokar ekki að endurtaka leikinn á tískuviku annarra borga.
„Ef ég myndi taka þátt aftur þá væri auðvitað draumur að næsti staður væri New York.“
Vörurnar sem Lína Birgitta sýndi í París eru úr vor og sumarlínunni fyrir næsta ár (SS23). Lína Birgitta segir að vörumerkið snúist fyrst og fremst um þægindi og notagildi og að Define The Line er ekki aðeins æfinga-fatamerki heldur lífsstíls-merki.
„Mesti fókusinn er á góðar æfingabuxur sem haldast uppi á æfingu, séu squat-proof og eru þægilegar en það er einnig hægt að nota margar týpur sem hversdagsbuxur eða leggings.“

Lína Birgitta og kærasti hennar Gummi kíró áttu góða daga í París og gerðu margt skemmtilegt fyrir og eftir sýninguna.
„Okkar uppáhald er auðvitað að kíkja í búðir og fara út að borða. En svo kom eitt skemmtilega á óvart í ferðinni en við munum deila því með fylgjendum í vikunni,“ segir Lína Birgitta að lokum. “

Áhugasamir geta fylgst með Línu Birgittu og merkinu Define the Line Sport á Instagram.
