Ísland vann öruggan fimmtán marka sigur á Ísrael í undankeppni Evrópumótsins í handknattleik í kvöld. Ísland leiddi 16-10 í hálfleik en í síðari hálfleik jók íslenska liðið muninn jafnt og þétt og sýndu mátt sinn og megin.
Ísland byrjaði leikinn af krafti og voru fljótlega komnir í 5-2. Björgvin Páll Gústavsson var að finna sig virkilega vel í markinu og vörnin var sömuleiðis öflug með Elvar Örn Jónsson fremstan í flokki. Þrátt fyrir að Ýmir Örn Gíslason hafi fengið tvisvar sinnum tveggja mínútna brottvísun á fyrstu tíu mínútum leiksins þá voru hann og Elliði Snær Viðarsson öflugir í miðri vörninni og Elvar Örn gríðarlega sterkur sömuleiðis.
Sóknarlega var Gísli Þorgeir Kristjánsson á bakvið flest sem gerðist þar. Hann dró vörn Ísraela sífellt til sín og opnaði fyrir aðra auk þess að skora mörk sjálfur.

Undir lok hálfleiksins fóru Íslendingar illa með nokkur færi sem gerði það að verkum að staðan í hálfleik var 16-10, munurinn hefði auðveldlega getað verið meiri.
Ísland byrjaði síðari hálfleikinn af miklum krafti með vörn og markvörslu áfram í fínu lagi. Kristján Örn Kristjánsson hafði átt góða innkomu í leikinn í fyrri hálfleik og hélt áfram að spila vel. Hann hefur verið að spila feykivel í Frakklandi með liði sínu Pays d'Aix og var meðal annars valinn í lið ársins í fyrra. Hann hefur ekki fengið mörg tækifæri með íslenska landsliðinu en nýtti sénsinn sinn vel í kvöld.

Guðmundur Guðmundsson þjálfari rúllaði vel á liðinu í síðari hálfleik en það skipti litlu máli, enda breiddin í íslenska liðinu mikil og góð. Munurinn jókst jafnt og þétt og varnarlega voru Íslendingar mjög góðir og Ísraelar áttu fá svör. Munurinn á liðunum er töluverður og það sást betur og betur í síðari hálfleiknum.
Að endingu var munurinn fimmtán mörk og mjög svö öruggur sigur í höfn.
Kristján Örn var markahæstur hjá Íslandi, skoraði sjö mörk í kvöld. Gísli Þorgeir skoraði sex mörk og Elvar Örn Jónsson fimm. Bæði Björgvin Páll Gústavsson og Ágúst Elí Björgvinsson áttu fínan leik í markinu,