Réttarhöldin fara fram í Hæstarétt New York-ríkis en saksóknarar segja fyrirtækið hafa verið notað af yfirmönnum þess til að komast hjá skattgreiðslum með því að greiða út laun í formi fríðinda og borga fyrir ýmsar eigur þeirra eins og íbúðir og bíla.
Í frétt New York Times segir að Trump Organization sé í raun móðurfélag rúmlega fimm hundruð annarra félaga. Réttarhöldin snúast að mestu gegn tveimur þeirra, Trump Corporation og Trump Payroll Corp..
Ekki er búist við því að Trump sjálfur muni bera vitni í málinu. AP fréttaveitan hefur eftir Juan Manuel Merchan, dómara, að hann búist við því að réttarhöldin muni standa yfir í um fjórar vikur, eftir að búið er að velja kviðdómendur. Hve langan tíma það mun taka er óvitað en líklegt þykir að það muni taka nokkra daga.
Réttarhöldin eru líkleg til að snúast að mestu um vitnisburð Allens Weisselbergs, sem var fjármálastjóri fyrirtækisins um árabil. Hann játaði skattsvik í sumar. Weisselberg var meðal annars dæmdur fyrir að láta fyrirtækið greiða skólagjöld barna hans og húsaleigu. Fyrirtækið keypti bíla fyrir hann og eiginkonu hans, auk húsgagna og raftækja, svo eitthvað sé nefnt.
Weisselberg verður helsta vitni saksóknara en lögmenn fyrirtækisins eru sagðir ætla að halda því fram að fjármálastjórinn hafi verið einn að verki. Hann hafi beitt áðurnefndum aðferðum til að komast hjá skattgreiðslum og það hafi hann gert án samráðs við Trump-fjölskylduna og aðra forsvarsmenn fyrirtækisins.
Trump ekki vinsæll í New York
Donald Trump er ekki vel liðinn í New York-borg, ef mark má taka af forsetakosningunum 2020. Joe Biden fékk mikinn meirihluta atkvæða þar og var munurinn hvað mestur í Manhatta, þar sem Biden fékk 87 prósent og Trump tólf.
Hann var sömuleiðis mjög umdeildur forseti og er enn mjög umdeildur svo erfitt gæti reynst að finna kviðdómendur sem eru hlutlausir gagnvart Trump.
Fyrirtækið gæti verið dæmt til að greiða rúmlega milljón dala í sekt.
Málaferlin tengjast ekki lögsókn Letitiu James, ríkissaksóknarar New York, en hún höfðaði í síðasta mánuði mál gegn Trump og börnum hans og sakaði þau um umfangsmikil fjársvik. Trump og börn hans hafa ekki verið ákærð, þar sem rannsókn James var ekki sakamálarannsókn.
Sjá einnig: Saka Trump og börn hans um umfangsmikil fjársvik
Hún sagði þó á blaðamannafundi í september að vísbendingar sem gætu verið notaðar til formlegrar ákæru hafi verið áframsendar til alríkissaksóknara og skattayfirvalda.