Lífið

Vil­borg Davíðs­dóttir selur Hall­veigar­kastala

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Vilborg Davíðsdóttir í Skotlandi þar sem hún hefur verið í hópferðum með lesendur þríleiksins um Auði djúpúðgu á söguslóðunum.
Vilborg Davíðsdóttir í Skotlandi þar sem hún hefur verið í hópferðum með lesendur þríleiksins um Auði djúpúðgu á söguslóðunum. Samsett

Vilborg Davíðsdóttir rithöfundur hefur sett heimili sitt að Hallgerðarstíg á sölu. Um er að ræða 127,7 fermetra hæð og ris með sérinngangi. 

Uppsett verð er 99.900.000 krónur samkvæmt fasteignavef Vísis

„Ég hef búið hér í tæp 19 ár, allt frá því að ég var ófrísk að dóttur minni 2004, við Björgvin Ingimarsson, maðurinn minn heitinn, byrjuðum okkar búskap hér,“ segir Vilborg um íbúðina í samtali við Vísi. 

„Hann dó 2013 og í bókinni minni Ástin, drekinn og dauðinn sem er frásögn af ferðalagi okkar með „drekanum“ sem var heilakrabbinn sem hann greindist með. Þá vísa ég oft í íbúðina sem Hallveigarkastala og við vorum auðvitað prinsinn og prinsessan í kastalanum en Hallveig, kötturinn okkar, var „Kastaladrottningin. “ Sú bók er eina bókin mín af tíu sem er ekki söguleg skáldsaga“

Hjónin að eiga við drekann sem Halldór Baldursson teiknaði vegna bókarinnar Ástin, drekinn og dauðinn.Halldór Baldursson

„Húsið er í kyrrlátum húsagarði í hálfgerðum felum á bak við húsalengjuna á Hallveigarstíg og sunnan megin eru bakhús frá Ingólfsstræti, til vesturs gaflinn á Aðventkirkjunni, þannig að staðsetningin er fullkomin, í hjarta Reykjavíkur en samt alveg í skjóli frá öllu ónæði og umferð,“ segir Vilborg um húsið.

Húsið á Hallveigarstíg er fallega rautt.fasteignaljósmyndun.is

Fallegur bókaveggur vekur þar sérstaka athygli.

„Bókavegginn smíðaði maðurinn minn áður en við fluttum inn og ég hef neyðst til að setja mér þá reglu að ein bók inn þýðir ein bók út.“

Fleiri myndir af íbúðinni má finna á Fasteignavef Vísis

fasteignaljósmyndun.is
fasteignaljósmyndun.is





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.