Aron Sig skoraði | FC Kaupmannahöfn á fleygiferð Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 13. nóvember 2022 15:31 Aron var á skotskónum í dag. Lars Ronbog/Getty Images Síðasta umferð dönsku úrvalsdeildarinnar fyrir jólafrí fer fram um helgina. Aron Sigurðarson skoraði í 3-3 jafntefli AC Horsens og OB á meðan Mikael Neville Anderson og Hákon Arnar Haraldsson voru í byrjunarliðum AGF og FC Kaupmannahafnar.
Nýliðar Horsens byrjuðu ekki vel á heimavelli í dag en gestirnir í OB voru komnir 2-0 yfir eftir aðeins nítján mínútna leik. Aron minnkaði muninn á 34. mínútu með sínu sjötta marki á leiktíðinni. Aðeins þremur mínútum síðar voru heimamenn búnir að jafna metin. Bæði lið skoruðu eitt mark í síðari hálfleik og lauk leiknum með 3-3 jafntefli. Aron lék allan leikinn í liði Horsens og nældi sér í gult spjald þegar fimm mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma. Aron Elís Þrándarson sat allan tímann á varamannabekk OB. Í Árósum mættust AGF og meistarar FCK. Hákon Arnar var eini Íslendingurinn í byrjunarliði gestanna en bæði Ísak Bergmann Jóhannesson og Orri Steinn Óskarsson voru á varamannabekk FCK í dag. Eftir markalausan fyrri hálfleik skoruðu heimamenn á tíundu mínútu síðari hálfleiks. Markið var hins vegar dæmt af vegna rangstöðu í aðdraganda marksins. Bæði Mikael og Hákon Arnar voru komnir af velli þegar Lukas Lerager kom FCK yfir á 79. mínútu. Ísak Bergmann kom inn af bekknum í uppbótartíma og skömmu síðar tvöfaldaði vinstri bakvörðurinn Viktor Kristansen forystu gestanna. Lokatölur 0-2 og FCK unnið þrjá leiki í röð án þess að fá á sig mark. Raunar hafa meistararnir ekki tapað deildarleik síðan þeir töpuðu fyrir Midtjylland 18. september. Staðan í deildinni er þannig að FCK er í 3. sæti með 27 stig. OB er í 5. sæti með 24 stig og Horsens í 9. sæti með 22 stig.
Fótbolti Danski boltinn Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Fleiri fréttir „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjá meira