Vindur með hægasta móti og frost að fimm stigum Atli Ísleifsson skrifar 6. desember 2022 07:12 Frost verður á bilinu núll til fimm stig í dag og á morgun. Vísir/Vilhelm Veðurstofan gerir ráð fyrir að vindur verði áfram með hægasta móti og að áttin verði ýmist vestlæg eða breytileg.
Í hugleiðingum veðurfræðings kemur fram að það verði bjartir kaflar nokkuð víða á landinu, en sums staðar dálitlar skúrir eða él við norður- og vesturströndina. „Á morgun snýst í norðan- og norðaustanátt og vindur yfirleitt fremur hægur, en gægist yfir 10 m/s nærri austursröndinni. Svolítil él um landið norðaustanvert, en bjartviðri sunnan- og vestanlands. Frost í dag og á morgun víða á bilinu 0 til 5 stig, en sums staðar frostlaust við sjóinn. Spár gera ráð fyrir að norðaustan- og norðanátt verði síðan ráðandi út vikuna með éljum norðan- og austanlands, en bjart að mestu sunnan heiða. Svo virðist sem þessi norðanáttarkafli verði í meinlausari kantinum, allavega hefur norðanáttin oft verið hvassari og meiri kuldi og/eða úrkoma fylgt með,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Norðaustan og norðan 3-8 m/s, en 8-13 með austurströndinni. Lítilsháttar él um landið norðaustanvert, en bjartviðri sunnan- og vestanlands. Frost 0 til 7 stig. Á fimmtudag og föstudag: Norðan 8-15 og él norðan- og austantil, en bjart með köflum sunnan- og suðvestanlands. Frost víða 0 til 4 stig. Á laugardag og sunnudag: Norðaustanátt og él norðaustan- og austanlands, en léttskýjað á Suður- og Vesturlandi. Hiti breytist lítið. Á mánudag: Líkur á stífri norðanátt með éljum, en bjart sunnan heiða. Kólnar í veðri.
Veður Mest lesið Rak í rogastans þegar hann las viðtalið við Bubba Innlent Ekki efni til að ákæra þá sem fötluð kona var látin hafa samræði við Innlent Aldrei séð annan eins hraðakstur eftir þrjátíu ár í lögreglunni Innlent Líkir tilætlunum Musk við lestarslys Erlent Árbæingar áhyggjufullir vegna umdeildra framkvæmda Innlent Fjarlægðu „óvelkominn aðila“ af öldrunarheimili Innlent Á níunda tug látin í hamfaraflóðum Erlent Skjálfti upp á 3,4 í morgun á Suðurlandi Innlent Fundin sek um að myrða ættingja með eitruðum sveppum Erlent Hiti nær 22 stigum fyrir austan Innlent Fleiri fréttir Hiti nær tuttugu stigum víða á morgun Fínasta veður um land allt Hægviðri, hafgola og hiti að átján stigum Skúrir á víð og dreif Rigning með köflum sunnan- og vestanlands Skúrir víða um land og lægð nálgast Allkröpp lægð á leiðinni til landsins Skýjað og skúrir en ekki of kalt Allt að sautján stiga hiti í dag Búast má við töluverðum dembum Rigning víða í dag Skýjað og væta í flestum landshlutum Áfram hlýjast á Vesturlandi Hlýjast á Vesturlandi Gular viðvaranir í kortunum Hiti gæti náð sautján stigum suðaustantil Bætir í úrkomu í kvöld Rigning eða súld um landið allt Lægðardrag yfir landinu Hiti að sextán stigum Allt að átján stiga hiti fyrir vestan Allt að tuttugu stiga hiti Að átján stigum suðvestanlands Fjögurra daga bongóblíða í vændum Væta víðast hvar og hiti að sautján stigum Rigning og hvassviðri með suðurströndinni Bjart með köflum en blæs úr austri í kvöld Bjart og milt peysuveður Glittir í endurkomu sumarsins Að mestu léttskýjað fyrir sunnan og vestan Sjá meira