Lífið

Fal­legt en ódýr að­ventu­skraut heima hjá Írisi og Elínu

Stefán Árni Pálsson skrifar
318662757_617010133761726_8023845086827978651_n

Listaparið Íris Tanja Flygenring, leikkona, og tónlistarkonan Elín Eyþórsdóttir eru nýtrúlofaðar en þær hafa vakið mikla athygli undanfarin ár hvor á sinn máta.

Íris Tanja hefur til dæmis slegið í gegn í Netflix þáttunum Kötlu og einnig þáttunum Ófærð.

Elín fyrir sína flottu tónlist og einnig fyrir þátttöku sína í Eurovision. Þær búa í mjög fallegri íbúð þar sem Íris Tanja hefur innréttað íbúðina á sinn listræna hátt.

Aðventu skreytingarnar hjá þeim eru bæði einfaldar, ódýrar og mjög flottar. Því eru skreytingarnar alveg klassískar og endast hreinlega fram eftir vetri.

Vala Matt leit við hjá þeim á dögunum og fékk að sjá einstaklega sjarmerandi aðventustemningu á þeirra heimili en innslag um heimilið parsins var á dagskrá í Íslandi í dag á Stöð 2 í gærkvöldi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.