Bíó og sjónvarp

Ís­lenskar stjörnur gengu bláa dregilinn á for­sýningu Avatar

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Það var stemning á frumsýningu Avatar 2.
Það var stemning á frumsýningu Avatar 2. sambíó

Gríðarleg stemning myndaðist í Sambíóunum Egilshöll í gærkvöldi á forsýningu stórmyndarinnar Avatar: The Way of Water. Eftirvænting fyllti andrúmsloftið í anddyrinu þar sem bíógestir biðu í röð sem náði alveg út á stétt.

Leikstjórinn James Cameron sýnir aftur snilli sína með Avatar: The Way of Water sem er framhald af Avatar sem kom út fyrir þrettán árum síðan og er enn þann dag í dag tekjuhæsta kvikmynd allra tíma á heimsvísu. Nýja myndin gerist um áratug á eftir þeirri fyrri. Hún segir frá Sully fjölskyldunni sem þarf að gera allt sem hún getur til þess að vernda íbúa Pandora plánetunnar þegar ógn steðjar að þeim.

Það var öllu til tjaldað í Sambíóunum Egilshöll í gærkvöldi og þemað bersýnilega blátt en gestir gengu bláan dregil og blár bjarmi lýsti upp salinn. Íslenskar stjörnur létu sig ekki vanta á frumsýningu myndarinnar en meðal gesta voru Gísli Örn Garðarsson leikari, Gústi B fjölmiðlamaður, Sigga Lund útvarpskona, Gunnar Hansson leikari, Agla María knattspyrnukona, Tommi Steindórs og Ómar Úlfur útvarpsmenn, Ásgeir Kolbeins og Hera Gísla ásamt öðru frábæru fólki.

Leikarinn Gísli Örn Garðarsson mætti með börnin.sambíó
Ásgeir Kolbeins og Bryndís Hera mættu ásamt syni sínum.sambíó
Útvarpsmaðurinn Ómar Úlfur mætti ásamt syni sínum.sambíó
Útvarpsmaðurinn Gústi B ásamt vinkonu sinni Gurrý.sambíó
Leikarinn Gunnar Hansson lét sig ekki vanta.sambíó
Þóra Clausen, dagskrárstjóri Stöðvar 2 og afhafnamaðurinn Bjarnólfur Lárusson.sambíó
Körfuboltaþjálfarinn Hraunar Karl og útvarpsmaðurinn Tommi Steindórs.sambíó
Knattspyrnukonan Agla María Albertsdóttir ásamt móður sinni, Elínu Þórðardóttur.sambíó
Jón Trausti Ólafsson, forstjóri Öskju og Edda Björk Kristjánsdóttir.sambíó
Ólöf Elíasdóttir ásamt útvarpskonunni Siggu Lund.sambíó
Hafsteinn Sæmundsson umsjónarmaður hlaðvarpsins Bíóblaður ásamt Guðnýju Björgu Helgadóttursambíó
Útvarpsmennirnir Freyr Friðfinns og Björn Kristjánsson.sambíó
Bíógestir gengu bláa dregilinn.sambíó


Tengdar fréttir

Ný stikla: Pandóra hefur aldrei verið glæsilegri

Framleiðendur Avatar kvikmyndanna hafa nú loks birt fulla stiklu fyrir næstu myndina í seríunni. Hún heitir Way of Water og og fjallar um Jake, Neytiri, börn þeirra og baráttu íbúa Pandora gegn mönnum.

Avatar aftur á toppinn

Kvikmyndin Avatar frá árinu 2009 er aftur orðin arðbærasta kvikmynd sögunnar, eftir að hún var nýverið endursýnd í kvikmyndahúsum í Kína. Avengers: Endgame hafði tekið efsta sætið af Avatar sumarið 2019.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.