„Höggorminum“ sleppt úr fangelsi í Nepal Hólmfríður Gísladóttir skrifar 22. desember 2022 08:04 Sobhraj árið 2011, ásamt eiginkonu sinni sem þá var 22 ára. epa/Narendra Shrestha Franska raðmorðingjanum Charles Sobhraj verður senn sleppt úr fangelsinu í Nepal þar sem hann hefur dvalið í nær tuttugu ár. Honum hefur verið skipað að snúa aftur til Frakklands.
Sobhraj, sem hlaut viðurnefnið „höggormurinn“ fyrir hæfileika sinn til að flýja úr fangavist og ginna ungar konur, var umfjöllunarefni sjónvarpsþáttanna The Serpent sem sýndir voru á BBC og Netflix. Þar var fjallað um morð Sobhraj á ungum ferðalöngum en hann er talinn hafa framið í kringum tuttugu morð á árunum 1972 til 1982, þar sem hann byrlaði fyrir fórnarlömbum sínum, beitti þau ofbeldi og kyrkti. Eftir að hafa dvalið í tuttugu ár í fangelsi á Indlandi fyrir að eitra fyrir frönskum ferðamönnum var Sobhraj handsamaður í Nepal fyrir morðin á ferðalöngunum Connie Jo Bronzich frá Bandaríkjunum og Laurent Carriere frá Kanada. Sobhraj var dæmdur í ævilangt fangelsi en dómstóll komst að þeirri niðurstöðu í vikunni að sleppa Sobhraj vegna aldurs, bágrar heilsu og góðrar hegðunar. Hann er hins vegar sagður vera grunaður um fimm morð í Taílandi, sem hann hefur aldrei svarað til saka fyrir.
Nepal Frakkland Mest lesið Áslaug Arna hættir á Alþingi Innlent Forseti klökknaði aftur: „Of mikið tilfinningalegt álag“ Innlent Tíu fangar verði þegar fluttir úr landi Innlent „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Innlent „Ekkert til í því“ að næsta skref sé ritstjórastóll Moggans Innlent Leita Íslendings í Taílandi Innlent „Þú værir í fangelsi ef ekki væri fyrir mig“ Erlent Steingrímur Ari Arason er látinn Innlent Þota föst á Tenerife vegna áreksturs Innlent Sami flugmaðurinn skotinn niður yfir Íran og yfir Kúveit Erlent Fleiri fréttir Árásir á Pétursborg á fyrsta degi fjárfestaráðstefnu Pútíns Sami flugmaðurinn skotinn niður yfir Íran og yfir Kúveit Konur meirihluti ráðherra í fyrsta sinn í sögu Danmerkur Mótmæli og átök vegna dauða Henry Nowak Gerðu árásir á eyju í Hormússundi í nótt „Þú værir í fangelsi ef ekki væri fyrir mig“ Steinsofandi þegar drunurnar riðu yfir: „Er þetta kjarnorkusprengja?“ Sundrung í Bretlandi vegna viðbragða lögreglu við drápi á ungmenni Fjarlægja mælitæki sem fylgist með AMOC nærri Íslandi Frítt til tannlæknis, skattalækkanir og gamall stórhátíðardagur endurvakinn Nýr El niño gæti orðið sá sterkasti sem sögur fara af Ætla að senda fleiri hælisleitendur á brott Skaðabótasjóður Trumps í hættu Ellefu látnir í umfangsmiklum árásum Rússa Sex úr sömu fjölskyldu skotnir til bana Áframhaldandi átök í Líbanon þrátt fyrir samkomulag Flugeldaverksmiðja sprakk í loft upp Miðvinstristjórn mynduð í Danmörku Hafnar ásökunum um nýtt hernaðarbrölt Japana Styttir ferðina vegna veikinda krónprinsessunnar Mótmæltu flutningi á ebólusmituðum Bandaríkjamönnum til Kenía Umdeildum vinstrimönnum meinuð koman til Bretlands Evrópskir og bandarískir öfgamenn lögðu saman á ráðin um fjöldabrottvísanir Frakkar tóku skuggaskip á Atlantshafi Deila í dómsal um hvort réttarhöldin verði opin Íranar gera árásir á Kúveit og Ísraelar sækja dýpra inn í Líbanon Veita sextán milljarða evra til Ungverjalands Hundruð handtekin vegna átaka í kjölfar sigurs PSG SAS fellir niður allt flug til Grænlands Norskur maður grunaður í máli Anne Elisabeth Hagen Sjá meira