West Ham vann fallslaginn | Ferguson bjargað stigi fyrir Brighton Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 21. janúar 2023 17:31 Jarrod Bowen skoraði tvö í dag. Rob Newell/Getty Images West Ham United vann 2-0 sigur á Everton í einum af fjórum leikjum dagsins í ensku úrvalsdeildinni sem hófst klukkan 15.00. Brighton & Hove Albion gerði 2-2 jafntefli við Leicester City á útivelli, Bournemouth og Nottingham Forest gerðu 1-1 jafntefli á meðan Aston Villa vann 1-0 útisigur á Southampton.
Leikur West Ham og Everton í Lundúnum var sannkallaður sex stiga leikur en hvorugt liðið hefur átt góðu gengi að fagna undanfarið. Hamrarnir unnu á endanum 2-0 sigur þökk sé tvennu frá Jarrod Bowen í fyrr hálfleik. Þetta var fyrsti sigur West Ham í deildinni síðan 24. október. Á sama tíma hefur Everton ekki unnið í síðustu átta deildarleikjum. Kaoru Mitoma kom Brighton yfir gegn Leicester City en Marc Albrighton og Harvey Barnes svöruðu fyrir heimamenn. Hinn ungi Evan Ferguson jafnaði metin undir lok leiks og þar við sat, lokatölur 2-2. Jaidon Anthony kom Bournemouth yfir gegn Forest eftir að mark hafði verið dæmt af gestunum frá Nottingham. Varamaðurinn Sam Surridge kom boltanum hins vegar í netið þegar lítið var eftir og lauk leiknum með 1-1 jafntefli. Ollie Watkins skoraði svo eina löglega markið í 1-0 sigri Villa á Southampton en James Ward-Prowse skoraði fyrir heimamenn en markið var dæmt af. Brighton er í 6. sæti með 31 stig að loknum 19 leikjum. Villa er í 11. sæti með 28 stig eftir 20 leiki, Nottingham er í 13. sæti með 21 stig. Leicester og West Ham koma þar á eftir með 18 stig hvort. Bournemouth er svo í 18. sæti með 17 stig á meðan Everton og Southampton eru í botnsætunum tveimur með 15 stig.
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Enski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Grealish í agabanni hjá Everton Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað „Enski boltinn er annar heimur“ „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Sjá meira