Gylfi á titlalausa markalistanum með Harry Kane Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. janúar 2023 12:00 Gylfi Sigurðsson í baráttunni við Harry Kane í sögulegum leik Íslands og Englands á EM 2016. Getty/Alex Livesey Harry Kane er sá leikmaður í fimm bestu deildunum í Evrópu sem hefur skorað flest mörk í öllum keppnum að meðtöldum landsliðsmörkum án þess að vinna titil.
Kane skoraði sitt 319. mark þegar hann tryggði Tottenham sigur á Fulham í ensku úrvalsdeildinni í vikunni. Kane er á sínu tíunda tímabili með Tottenham og hefur skorað 199 mörk í 300 leikjum í ensku úrvalsdeildinni. Hann hefur einnig skorað 53 mörk í 80 landsleikjum fyrir England. View this post on Instagram A post shared by Transfermarkt (@transfermarkt_official) Tottenham og England hafa aldrei unnið titil með Kane innanborðs. Tottenham varð í öðru sæti í Meistaradeildinni 2019 og í öðru sæti í enska deildabikarnum 2015 og 2021. Enska landsliðið varð í öðru sæti á Evrópumótinu 2020. Kane er með yfirburðarforystu á listanum en hann hefur skorað 61 marki meira en Ítalinn Antonio Di Natale sem skoraði 258 mörk fyrir Empoli, Udinese og ítalska landsliðið án þess að vinna titil. Þriðji á listanum er síðan Bosníumaðurinn Vedad Ibišević sem lék lengst af sínum ferli í Þýskalandi. Hann skoraði 184 mörk á sínum ferli fyrir lið og landslið en vann engan titil. Við Íslendingar eigum fulltrúa á þessum lista en Gylfi Þór Sigurðsson er í áttunda sæti listans með 116 mörk. Gylfi hefur ekki unnið titil á sínum ferli í Englandi og í Þýskalandi þótt að hann sé hluti af íslenska landsliðinu sem náði bestum árangri í sögunni.
Enski boltinn Mest lesið „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Íslenski boltinn Íslenskir dómarar úti í kuldanum: „Þetta er auðvitað svekkjandi“ Fótbolti Pínleg mistök Neuer gáfu hraðasta mark í sögu deildarinnar Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Þurfti að gefa í þegar maginn sagði til sín Sport Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Enski boltinn Bestu tilþrifin: Plakat á Höfn, ótrúleg karfa nýliðans og svakalegur þristur Körfubolti Líktu Álftanesi við Bayern München Körfubolti Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Enski boltinn Aflýstu leik vegna skutlukasts Fótbolti Utan vallar: Það á enginn séns í kónginn Fótbolti Fleiri fréttir Segir Barcola ekki í vandræðum Kyssti Bentancur eftir rauða spjaldið Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Henderson í stuði í stórsigri Magnað mark dugði fyrir sigri Kúvending í máli uppljóstarans sem óttast um líf sitt Áttu í sáttaviðræðum við ensku úrvalsdeildina „Hvernig dirfast þeir að skemma eitthvað sem er hluti af DNA þessa lands“ Gakpo og Isak missa af stórleiknum Setja félagið á sölu tveimur árum eftir kaup Haaland rýfur þögnina: „Verðum öll að standa saman“ Xhaka sekur um að falsa Covid-19 vottorð Haaland biðlar til stuðningsmanna að standa saman Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Wirtz sé búinn að missa trúna Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Arteta framlengir við Arsenal Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Dregur sig úr landsliðshópnum Meiddist í Portúgal Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Sjá meira