Eriksen yfirgaf Old Trafford á hækjum Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 29. janúar 2023 11:01 Hvernig Andy Carroll fékk ekki spjald fyrir þessa tæklingu er rannsóknarefni. Martin Rickett/Getty Images Christian Eriksen yfirgaf Old Trafford, heimavöll Manchester United, á hækjum eftir sigurinn á B-deildarliði Reading í ensku bikarkeppninni í gærkvöld. Eriksen var í byrjunarliði Man United en var tekinn af velli skömmu eftir glannalega tæklingu Andy Carroll.
Eftir markalausan fyrri hálfleik, þar sem mark var dæmt af Marcus Rashford, þá skoraði Casemiro fyrsta mark leiksins á 54. mínútu. Eriksen var tekinn af velli skömmu síðar en hann átti erfitt með gang eftir tæklingu Carroll. eriksen s injury is Bad pic.twitter.com/rgzu7r5fed— rachel (@xiw4n) January 28, 2023 Þó Carroll hafi á óskiljanlegan hátt sloppið við spjald þá nældi hann sér í tvö gul spjöld með stuttu millibili og var sendur í sturtu á 65. mínútu. Hann fer því í leikbann en það gæti verið að Eriksen missi af fleiri leikjum en framherjinn hárprúði. Eftir leik sást Eriksen yfirgefa Old Trafford á hækjum en ekki er vitað hversu lengi danski miðjumaðurinn verður frá keppni. Erik Ten Hag, þjálfari Man United, sagði að leikmaðurinn yrði skoðaður nánar í dag og þá ætti að koma í ljós hversu lengi liðið yrði án Eriksen. Hinn þrítugi Eriksen hefur spilað einkar vel það sem af er tímabili eftir að hafa komið til Man Utd á frjálsri sölu í sumar. Það er ljóst að hans yrði sárt saknað en Man United er bæði þunnskipað á miðsvæðinu sem og að liðið mun spila 10 leiki á næstu 30 dögum eða svo.
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Segir félagið í skítnum Enski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Fyrstur síðan David Robinson var og hét Körfubolti Fleiri fréttir Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Grealish í agabanni hjá Everton Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað „Enski boltinn er annar heimur“ „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Sjá meira