Vindmylluveri í Klausturselsheiði mótmælt Jakob Bjarnar skrifar 30. janúar 2023 16:01 Vindmyllur í Tælandi. Vindmyllurnar sem norska fyrirtækið Zephyr vill reisa í landi Klaustursels á Jökuldal eru engin smásmíði: Hvert mastur yrði allt að 250 metrar að hæð sem eru vel ríflega þrír Hallgrímskirkjuturnar hver ofan á öðrum og hver spaði allt að 80 metrar að lengd. Getty/Witthaya Prasongsin Landvernd hefur komið á fót undirskriftasöfnun þar sem skorað er á norska orkufyrirtækið Zephyr AS að falla frá áformum um að reisa risavaxið vindorkuver í landi Klaustursels á Fljótsdalsheiði.
Að sögn Auðar Önnu Magnúsdóttur, framkvæmdastjóra Landverndar, miðar söfnuninni ágætlega. „Við erum að gera þetta af litlum efnum og dreifum organískt. En þetta potast. Í fyrra vorum við með tvær undirskriftasafnanir þar sem við fengum tvö þúsund í annarri og þrjú þúsund í hinni. Þetta er komið yfir fimmtán hundruð undirskriftir núna,“ segir Auður og metur það svo í samanburði að áhugi fólks á þessu sé verulegur. Á vef Landverndar er ekki gert lítið úr áhrifum þessarar framkvæmdar, nema síður sé. Þar segir meðal annars að hvert mastur yrði allt að 250 metrar að hæð og hver spaði allt að 80 metrar að lengd. „Framkvæmdasvæðið yrði á stærð við hálft Þingvallavatn eða jafn stórt og 5.756 fótboltavellir lagðir saman.“ Þá segir að sjónmengun vindorkuversins næði yfir miklu stærra svæði því mannvirkin myndu sjást vel víða úr Vatnajökulsþjóðgarði og öllum heiðum og fjöllum í nágrenninu. „Við hvert mastur þarf 1.200 fm mikið styrktan pall undir krana sem notaðir eru til að koma möstrunum á sinn stað og undir hvert mastur þarf auk þess 120 fm öfluga undirstöðu.“ Ríkisstjórnin dregur lappirnar um að setja reglur Fyrirhugað er að söfnunin, sem fór af stað 19. þessa mánaðarstandi til mánaðarmóta febrúar/mars. „Þá munum við loka á og skila undirskriftunum til sveitarfélaganna eða Múlaþings og svo Zephyr AS.“ segir Auður. Spurð hverjar hún meti líkurnar á því að þetta verði segir Auður að það fari að verulegu leyti eftir því hvernig stjórnvöld bregðast við. Auður Önnu Magnúsdóttir er framkvæmdastjóri Landverndar. Hún bendir á að ef miklir fjárhagslegir haggsmunir séu í húfi fyrir þá sem veita leyfin getur leyfisveitandi varla talist hlutlaus.vísir/egill „Ríkisstjórnin hefur dregið lappirnar í að taka af allan vafa um að þetta heyri undir lög um rammaáætlun. Formlega séð heitir þetta lög um vernd og orkunýtingu landsvæða, 48/2011.“ Guðlaugur Þór vill að nærumhverfið njóti gróðans Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfisráðherra kom með útspil sem þessu tengist á RÚV í morgun þegar hann sagði að hann vilji að tekjur af vindorku renni til nærumhverfis. Ekki skal efast um að þessi málflutningur fellur í kramið heima í héraði. Auður segir það ekki óeðlilegt ef verið er að reisa orkuver sem valdi íbúum í nágrenni óþægindum og jafnvel skaða. „Að þeim sé bættur sá skaði sem þeir verða fyrir. En það verða að vera ríkir almannahagsmunir fyrir því að slíkt sé reist. Og við höfum náttúrlega ekki séð að þeir séu fyrir hendi þarna og ekki í orkuframleiðslu þegar 80 prósent rafmagnsins fer til stórnotenda, 70 til álveranna og kísilverananna. Erfitt að sjá að viðbót við raforkukerfið séu brýnir almannahagsmunir.“ Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfisráðherra ásamt Sigurði Inga Jóhannssyni innviðaráðherra á Alþingi. Auður segir ríkisstjórnina draga lappirnar í að ákveða hvernig leikreglurnar eru varðandi uppbyggingu vindmyllugarða.vísir/vilhelm Og Auður bendir á að ef það eru miklir fjárhagslegir hagsmunir í húfi fyrir þá sem taka ákvörðun um leyfisveitingar þá erum við náttúrlega komin með stöðu þar sem leyfisveitandi getur ekki talist vera hlutlaus. Á vef Landverndar kemur fram að vindorkuverið Klausturselsvirkjun á Fljótsdalsheiði sé áætlað allt að 500 MW sem myndi gera það að næststærstu virkjun landsins. „Gert er ráð fyrir 70 -100 risamöstrum sem hefðu í för með sér gríðarlega eyðileggingu á landslagi og víðernum, óafturkræft jarðrask og eyðingu votlendissvæða. Af orkuverinu hlytist mengun, truflun og ógn við gróður, fugla og spendýr á svæðinu, m.a. hreindýr, himbrima, álftir og gæsir. Þeir sem vilja njóta svæðisins yrðu óhjákvæmilega fyrir truflun og óþægindum.“ Alli í Klausturseli segir enga sjónmengun af vindmyllunum Býlið Klaustursel er í Jökuldal Efri, austan Jöklu, en hinn þekkti ferðamannastaður Stuðlagil er í landi Klaustursels og Grundar sem er norðan Jöklu. Aðalsteinn Jónsson fyrrverandi bóndi á Klausturseli, jafnan kallaður Alli í Klausturseli þar eystra þó hann hafi látið af búskap, er hins vegar áfram um að af þessum framkvæmdum verði. Alli í Klausturseli gefur ekki mikið fyrir Landvernd og telur reyndar andstöðu við virkjanir til marks um firrningu borgarbarna.vísir/arnar Hann hefur talað fyrir ágæti vindorku á sinni Facebook-síðu, sem hann kallar sveitasímann – nauðsyn rafmagns í nútíma samfélag; það þurfi að brjóta egg í ommilettuna. Þann 6. desember bendir hann til að mynda á að ein best heppnaða uppbygging ferðaþjónustu fyrir austan sé Óbyggðasetrið á Egilsstöðum í Fljótsdal og virðast raflínur sem tengjast Kárahnjúkavirkjun ekki spilla upplifun gesta. „Nú eru í vinnslu áætlanir um virkjun vindorku á Fljótsdals og Klausturselsheiði. Nú háttar svo til að bæði Fljótsdalur og Jökuldalur eru með bröttum fjallshlíðum og tæpir 25 km milli bæja. Heiðin í svipaðri hæð frá fjallsbrúnum að miðri heiði. Því ekki hætta á að sjónmengunar gæti í byggð af slíkri raforkuframleiðslu. Gestir Óbyggðaseturs og Stuðlagils eiga ekki að verða fyrir sjónmengun af völdum slíkrar uppbyggingar,“ segir Aðalsteinn meðal annars.
Múlaþing Stjórnsýsla Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Umhverfismál Vindorka Orkumál Tengdar fréttir Þúsund vindmyllur Hjarðhegðun er varasöm og mér bregður þegar ég verð hennar var. Ef mig misminnir ekki voru 146 fiskeldisstöðvar á Íslandi árið 1989. 30. nóvember 2022 07:31 Berst gegn vindmyllum við nýju sjóböðin: „Ég held að menn myndu sjá eftir þessu samstundis“ Skúli Mogensen athafnamaður opnaði lúxussjóböð í Hvammsvík í Hvalfirði í júlí og útkoman er einstök náttúruperla. En um svipað leyti og starfsemin hófst birtist matsáætlun fyrir vindmyllur ofan á fjallið hinum megin við fjörðinn, sem myndu skyggja á útsýnið í böðunum ef hugmyndirnar yrðu að veruleika. Nú berst Skúli við vindmyllur í Hvalfirði. 20. október 2022 08:50 „Þú mátt ekki segja íbúarnir og vera að vísa til allra“ Ketill Sigurjónsson er framkvæmdastjóri Zephyr Iceland, sem hefur stórtæk áform um uppbyggingu vindmyllugarða víða um land, þar á meðal í Hvalfirði. Þar hefur áformunum verið harðlega mótmælt af sumum íbúum, þar á meðal Skúla Mogensen athafnamanni. Fjallað var um áformin í Íslandi í dag og lúxusböð Skúla heimsótt, sem vindmyllurnar eru sagðar munu skyggja á. 24. október 2022 08:45 Forsætisráðherra vill regluverk um vindorkuver Forsætisráðherra segir ekki hægt að ræða uppbyggingu einkaaðila á vindorkuverum að neinu viti fyrr en formleg stefna stjórnvalda liggi fyrir, mögulega með frumvarpi á vorþingi. Fjöldi einkaaðila hugsar sér vel til glóðarinnar en ráðherra segir undirstöðu orkuframleiðslu eiga að vera á höndum almennings. 30. september 2022 20:01 Öldungur fær arftaka eftir 110 ára þjónustu Mesti öldungur vegakerfisins stendur á tímamótum. Eftir hundrað og tíu ára þjónustu við landsmenn er komið að því að brú á Austurlandi verði leyst af hólmi. 21. júlí 2018 07:15 Mest lesið „Af hverju ertu svona í framan?“ Innlent Var að streyma á TikTok þegar hann féll til jarðar og lést Erlent Alelda bíll á Reykjanesbraut Innlent Kurr innan Samfylkingarinnar vegna brottvísunar ungbarna Innlent Safnaði í bálköst innandyra en kennir stundarbrjálæði um íkveikjuna Innlent Prestur í Dalvík sver af sér kjaftasögur um ókristilega hegðun Innlent Fjöldi án rafmagns vegna vonskuveðurs í Noregi Erlent Tætir í sig leikskólaplan borgarinnar: Segir Reykjavík taka skref aftur á bak Innlent „Algjörlega alveg út í hött“ Innlent Eldur í þvottahúsi á Granda Innlent Fleiri fréttir Prestur í Dalvík sver af sér kjaftasögur um ókristilega hegðun Eldur í þvottahúsi á Granda Prestur og prófastur bíður spenntur eftir Hrútaskránni Kurr innan Samfylkingarinnar vegna brottvísunar ungbarna Fokdýrar flugferðir, ögurstund á Gasa og óvenjulegt innbrot Boða íbúafundi vegna mögulegrar sameiningar sveitarfélaganna Alelda bíll á Reykjanesbraut Framkvæmdirnar komi eftir ákall frá íbúum Safnaði í bálköst innandyra en kennir stundarbrjálæði um íkveikjuna Skrítin afstaða BSRB og ASÍ Tekist á um leikskólamál og árásir á Gasa Umfangsmikil flugslysaæfing á Reykjavíkurflugvelli Tætir í sig leikskólaplan borgarinnar: Segir Reykjavík taka skref aftur á bak Rannsaka mögulega stunguárás Göngu- og hjólabrýr yfir Elliðaár opnast „Af hverju ertu svona í framan?“ „Algjörlega alveg út í hött“ Umferðin færist inn á íbúðagötur Andar sem eru ekki hér en voru í myndinni þeir sveima og fylgjast með Dugar ekki lengur að dorga og nú þurfi að kasta út neti Vann á öllum deildum leikskólans Segja Rússa heyja stríð við Vesturlönd og síðustu ævidagarnir á Grund „Kópavogsmódelið er ekkert annað en þjónustuskerðing“ Nýsestur á skrifstofunni þegar hann fékk bíl í flasið Starfsmaður á Brákarborg grunaður um kynferðisbrot Fresta framkvæmdum vegna veðurs Sýnist komið að seinni hluta í eldsumbrotum í Sundhnúksgígaröðinni Grunaður um að hafa brotið á fleiri en tíu börnum Varaformannsslagur í Miðflokknum: Öll vinir og „peppuð“ fyrir landsþingi Stöðfirðingum enn ráðlagt að sjóða vatn vegna mengunar Sjá meira
Þúsund vindmyllur Hjarðhegðun er varasöm og mér bregður þegar ég verð hennar var. Ef mig misminnir ekki voru 146 fiskeldisstöðvar á Íslandi árið 1989. 30. nóvember 2022 07:31
Berst gegn vindmyllum við nýju sjóböðin: „Ég held að menn myndu sjá eftir þessu samstundis“ Skúli Mogensen athafnamaður opnaði lúxussjóböð í Hvammsvík í Hvalfirði í júlí og útkoman er einstök náttúruperla. En um svipað leyti og starfsemin hófst birtist matsáætlun fyrir vindmyllur ofan á fjallið hinum megin við fjörðinn, sem myndu skyggja á útsýnið í böðunum ef hugmyndirnar yrðu að veruleika. Nú berst Skúli við vindmyllur í Hvalfirði. 20. október 2022 08:50
„Þú mátt ekki segja íbúarnir og vera að vísa til allra“ Ketill Sigurjónsson er framkvæmdastjóri Zephyr Iceland, sem hefur stórtæk áform um uppbyggingu vindmyllugarða víða um land, þar á meðal í Hvalfirði. Þar hefur áformunum verið harðlega mótmælt af sumum íbúum, þar á meðal Skúla Mogensen athafnamanni. Fjallað var um áformin í Íslandi í dag og lúxusböð Skúla heimsótt, sem vindmyllurnar eru sagðar munu skyggja á. 24. október 2022 08:45
Forsætisráðherra vill regluverk um vindorkuver Forsætisráðherra segir ekki hægt að ræða uppbyggingu einkaaðila á vindorkuverum að neinu viti fyrr en formleg stefna stjórnvalda liggi fyrir, mögulega með frumvarpi á vorþingi. Fjöldi einkaaðila hugsar sér vel til glóðarinnar en ráðherra segir undirstöðu orkuframleiðslu eiga að vera á höndum almennings. 30. september 2022 20:01
Öldungur fær arftaka eftir 110 ára þjónustu Mesti öldungur vegakerfisins stendur á tímamótum. Eftir hundrað og tíu ára þjónustu við landsmenn er komið að því að brú á Austurlandi verði leyst af hólmi. 21. júlí 2018 07:15