Janus Daði og Sigvaldi í aðalhlutverkum þegar Kolstad vann stórsigur Smári Jökull Jónsson skrifar 5. febrúar 2023 18:54 Janus Daði átti stórleik í dag. Vísir/Vilhelm Janus Daði Smárason og Sigvaldi Björn Guðjónsson áttu báðir góðan leik fyrir Kolstad sem vann stórsigur í norsku úrvalsdeildinni í dag. Fleiri Íslendingar voru í eldlínunni með sínum liðum.
Kolstad var mætt til Sandefjord þar sem þeir mættu heimamönnum í Runar. Skemmst er frá því að segja að sigur Kolstad í dag var öruggur. Staðan í hálfleik var 19-14 gestunum í vil sem strax í upphafi höfðu náð ágætri forystu. Lið Runar hélt ágætlega í við Kolstad í upphafi síðari hálfleiks en síðan skildu leiðir endanlega og Kolstad vann að lokum tíu marka sigur, lokatölur 36-26. Sigvaldi Björn var markahæstur í liði gestanna en hann skoraði átta mörk úr ellefu skotum. Janus Daði skoraði fimm mörk og gaf þar að auki átta stoðsendingar. Fleiri Íslendingalið léku í dag. Hafþór Vignisson komst ekki á blað hjá Arendal sem vann 29-28 sigur á Bækkelaget og Orra Frey Þorkelssyni tókst ekki að skora úr eina skotinu sem hann átti á mark þegar lið hans Elverum vann góðan útisigur á Sandnes. Lokatölur þar 31-24. Óskar Ólafsson skoraði hins vegar þrjú mörk fyrir Drammen sem tapaði á útivelli fyrir Kristiansand. Lokatölur 40-35 en Óskar nýtti öll skot sín í leiknum og gaf þar að auki tvær stoðsendingar.
Norski handboltinn Mest lesið „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid Fótbolti Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Fótbolti Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars Handbolti Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Handbolti Fleiri fréttir Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sjá meira