Nauðgari rekinn degi eftir að hann skoraði þrennu Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 8. febrúar 2023 12:31 David Goodwillie er aftur orðinn atvinnulaus. getty/Rob Casey Enska utandeildarfélagið Radcliffe hefur rekið David Goodwillie degi eftir að hann skoraði þrennu í leik með liðinu.
Goodwillie skoraði þrjú mörk í 4-2 sigri Radcliffe á Belper Town í gær. Það var hans fyrsti og síðasti leikur fyrir félagið. Fæstir vissu að Goodwillie væri kominn til Radcliffe enda hafði félagið ekki tilkynnt um félagaskipti skoska framherjans. Fyrir sex árum var Goodwillie fundinn sekur um að vera nauðgari í einkamáli ásamt fyrrverandi samherja sínum, David Robertson. Þeir greiddu þolandanum hundrað þúsund pund í skaðabætur. Goodwillie fór þó ekki fyrir rétt því ekki þóttu næg sönnunargögn fyrir hendi. Forráðamenn Radcliffe sáu greinilega eftir því að hafa samið við Goodwillie því í morgun sendi félagið frá sér yfirlýsingu þess efnis að samningi framherjans hefði verið rift. Radcliffe er ekki fyrsta félagið sem rekur Goodwillie. Fyrir ári gerði Raith Rovers í Skotlandi slíkt hið sama í fyrra. Goodwillie náði reyndar aldrei að spila fyrir skoska liðið. Líkt og Radcliffe baðst Raith Rovers afsökunar á að hafa samið við Goodwillie. Í yfirlýsingu frá Radcliffe segir að félagið vilji gefa fólki annað tækifæri í lífinu en þarna hafi það lesið vitlaust í stöðuna. Goodwillie, sem er 33 ára, hefur komið víða við á ferlinum. Lengst af lék hann Dundee United og Clyde í Skotlandi. Hann lék þrjá leiki fyrir skoska landsliðið og skoraði eitt mark.
Enski boltinn Kynferðisofbeldi Mest lesið UEFA rannsakar ekki kynþáttaníð Ísraela Fótbolti „Eins og það væri verið að loka mig inni á heimavist“ Fótbolti HM-hetjan harmar frægðina: „Myndi frekar velja lífið sem ég átti áður“ Fótbolti „Það hefur enginn áhuga á að hlusta á það“ Fótbolti „Öll vandamál eins og kjúklingaskítur eftir þetta“ Fótbolti Litu niður í þjóðsöngnum og tóku ekki í hendur Ísraela Fótbolti Fagnar 19 ára afmæli með landsliðinu: „Hljóp til mömmu og lét hana vita“ Fótbolti Fyrirliði Ísraels: „Fengi langt bann ef ég segði skoðun mína“ Fótbolti Má ekki mæta Íslandi eftir dóm fyrir heimilisofbeldi Fótbolti Sjáðu fundinn: Arnar og Hákon sátu fyrir svörum í Lúxemborg Fótbolti Fleiri fréttir Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Eiði Smára ekki skemmt Dregur sig úr landsliðinu Vill henda Wirtz út úr liðinu Xhaka til rannsóknar og gefur út yfirlýsingu „Mér finnst það ekki vandamál“ Vissi að dómararnir myndu ekki láta Man. Utd tapa Sjáðu hlægilega sjálfsmarkið, þrennu sem dugði ekki og sigurmark Isaks Neville: Alveg ömurlegt og versta korter sem ég hef séð hjá Man. Utd Slysalegt sjálfsmark en Cunha reddaði stigi Isak tryggði Liverpool sigurinn City vann Sunderland í átta marka leik Sjá meira