Snýr aftur til Chelsea í sumar eftir mislukkaða lánsdvöl á Ítalíu Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 15. mars 2023 17:01 Lukaku hefur ekki fundið taktinn. Jonathan Moscrop/Getty Images Lánsdvöl belgíska framherjans Romelu Lukaku hjá Inter Milan á Ítalíu hefur ekki gengið að óskum. Framkvæmdastjóri félagsins hefur staðfest að Lukaku fari aftur til Chelsea að dvölinni lokinni.
Inter seldi Lukaku til Chelsea sumarið 2021 á 97,5 milljónir punda eða rúmlega 16,8 milljarða íslenskra króna á gengi dagsins í dag. Lukaku, sem var samningsbundinn Chelsea frá 2011 til 2014, fann sig ekki í Lundúnum og var síðasta sumar sendur á láni til Inter. Var vonast til þess að framherjinn myndi finna fyrra form en hann var frábær hjá Inter frá 2019 til 2021. Það hefur engan veginn gengið eftir og hefur Lukaku aðeins skorað 5 mörk í 17 leikjum í öllum keppnum. Beppe Marotta, framkvæmdastjóri Inter, hefur nú staðfest að Inter muni ekki nýta kauprétt sinn á hinum 29 ára gamla Lukaku og að leikmaðurinn fari aftur til Chelsea í sumar. Inter Milan CEO Beppe Marotta has confirmed Romelu Lukaku will return to Chelsea when his loan deal expires at the end of the season. #CFC pic.twitter.com/83eZ8gvOvH— The Athletic | Football (@TheAthleticFC) March 14, 2023 Samningur framherjans við Chelsea rennur út sumarið 2026 og verður forvitnilegt að sjá hvort Graham Potter, þjálfari liðsins, gefi Lukaku þriðja sénsinn á Brúnni.
Fótbolti Ítalski boltinn Mest lesið Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Fótbolti Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Íslenski boltinn Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Lélegasti framherji mótsins strax fundinn Sport Hoppuðu og skríktu af gleði þegar símtalið loksins barst Fótbolti Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Almar ekki í kassanum Fótbolti Hver er flottasta treyjan á HM? Fótbolti Sjáðu Elísabetu vinna titilinn með fjögurra sentímetra mun Sport Fleiri fréttir Partey ekki hleypt inn í Kanada og missir af fyrsta leik Gana á HM „Hafið þið ekki horft á leikina?“ Hoppuðu og skríktu af gleði þegar símtalið loksins barst Almar ekki í kassanum Trump mætir ekki í kvöld Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Mourinho sækir fyrsta leikmanninn Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Maður dagsins á HM: Jafnfætti prinsinn jafnaði sig í tæka tíð Meiri hraði á HM en tímasóun ekki alveg úr sögunni Íhugar að rifta samningnum áður en hann byrjar Ferðaðist ekki með liðinu Hver er flottasta treyjan á HM? Suður-Kórea byrjar heimsmeistaramótið vel Þá roðnaði Beckham Þetta þarf að gerast svo við fáum leik á milli Messi og Ronaldo á HM Pele og Thierry Henry fá götu í New York nefnda eftir sér Norðmenn ekki aðeins með lið á HM heldur einnig lögreglumenn Bestu-deildarpar á von á barni saman Grét af gleði þegar Mexíkó byrjaði HM á sigri á níu Suður-Afríkubúum Ísland og Argentína hækkuðu sig bæði á FIFA-listanum Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fljótasta opnunarmark HM í tuttugu ár Mourinho skrifaði undir þriggja ára samning Heimsendi HM-dómarinn fær að dæma úrslitaleik Borga rútur svo stuðningsmenn komist á leikinn Marokkó missir lykilmenn rétt fyrir HM Beta aldrei upplifað annað eins Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Elstir og yngstir á HM Sjá meira