Lífið

Á tólf börn en sér eftir því að hafa ekki barnað Christinu Mili­an

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Barnamaskínan Nick Cannon sér eftir því að hafa ekki eignast barn með sinni fyrrverandi, söngkonunni Christinu Milian.
Barnamaskínan Nick Cannon sér eftir því að hafa ekki eignast barn með sinni fyrrverandi, söngkonunni Christinu Milian. Getty/Samsett

Grínistinn Nick Cannon segist sjá eftir því að hafa ekki eignast barn með fyrrverandi kærustu sinni, Christinu Milian. Cannon hefur vakið mikla athygli fyrir barnalán sitt á síðustu árum en hann hefur eignast tólf börn með sex konum.

Það eru líklega fáir sem geta státað sig af því að hafa eignast fimm börn á einu ári, en það getur grínistinn Nick Cannon því hann eignaðist fimm börn á síðasta ári.

Cannon hefur talað mjög opinskátt um viðhorf sitt til ástarsambanda. Hann hefur lýst því yfir að hann tengi einkvæni við sjálfselsku og eignarhald. Hann hefur sannarlega fylgt þeirri skoðun eftir í verki, því hann hefur verið við ófáa konuna kenndur. Þau ástarsambönd hafa oftar en ekki borið ávöxt og tekur Cannon fulla ábyrgð á því.

„Ég ber það mikla virðingu fyrir sjálfum mér að ef ég er kominn á þann stað með konu að taka af mér smokkinn, þá er það af því ég hef hugsað með mér að hún geti orðið barnsmóðir mín,“ sagði Cannon í viðtali á síðasta ári.

Sjá: Telur ein­kvæni vera ó­heil­brigt

Nýlega var Cannon gestur í þættinum The Shade Room. Þar var hann spurður hvort það væri einhver kona úr fortíðinni sem hann sæi eftir því að hafa ekki eignast barn með.

„Ég veit að ef ég segi þetta þá verður allt vitlaust,“ svaraði Cannon og rifjaði upp samband sitt við leik- og söngkonuna Christinu Milian. Þau kynntust við tökur á kvikmyndinni Love Don't Cost a Thing árið 2003 og voru saman í tvö ár.

Christina Milian og Nick Cannon voru par í um tvö ár.Getty/Lee Celano

Fjórum árum síðar giftist Milian rapparanum The-Dream og ári síðar eignuðust þau barn saman.

„Ég man eftir því að þegar ég komst að því að hún væri ólétt þá hugsaði ég andskotinn maður.“ Hann hugsaði að þetta hefði getað verið barnið hans. Á þeim tíma var hann þó giftur söngkonunni Mariuh Carey.

„En ég var samt hamingjusamur fyrir hennar hönd. Mér varð bara hugsað til þess hve ástfangin við vorum. Við ræddum þessa hluti [barneignir]. En lífið gerist bara eins og það á að gerast og alheimurinn gefur okkur það sem við eigum að fá.“

Nokkrum árum eftir sambandsslitin sagði Milian frá því að hún hefði komist að því að Cannon hefði verið henni ótrúr. Það hafi verið henni sérstaklega sárt þar sem Cannon var hennar fyrsta alvöru ást.


Tengdar fréttir

Nick Cannon á von á sínu níunda og tíunda barni

Bandaríski þáttastjórnandinn Nick Cannon á nú von á sínu níunda og tíunda barni. Nýjasta tilkynningin er hans þriðja barn með fyrirsætunni Brittany Bell en fyrir eiga þau börnin Golden Sagon og Powerful Queen.

Fimmta barnið á árinu komið í heiminn

Nick Cannon, sjónvarpsmaðurinn sem virðist hafa einsett sér að eignast sem flest börn, eignaðist sitt tólta barn á dögunum. Hann hefur nú eignast fimm börn það sem af er ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.